
Þetta meðhöndlum við
Kviðslit er algengt, sérstaklega hjá körlum. Það lagast ekki af sjálfu sér og getur stækkað með tímanum, en flest eru meinlaus og aðgerðin er einföld. Ef bungan verður skyndilega aum, hörð og gengur ekki til baka skaltu leita strax á bráðamóttöku.
Algengustu kviðslitin sem við meðhöndlum eru nárakviðslit (algengasta tegundin), lærkviðslit, naflakviðslit og kviðslit í miðlínu ofan nafla, auk örkviðslita í gömlum skurðörum.
Greiningin byggir á viðtali og skoðun; þegar þörf er á er gerð ómskoðun til staðfestingar. Skurðlæknir fer yfir aðgerðarkosti með þér – kviðsjáraðgerð eða opna aðgerð – og hvort og hvenær aðgerð er ráðlögð.

Svona getum við hjálpað þér
Leiðandi sérfræðingar á sínu sviði
Teymið
Sérfræðingar í fremstu röð og framúrskarandi þjónusta.
Verðskrá
Viðtal, skoðun og kviðslitsaðgerðir hjá skurðlæknum Klíníkurinnar eru samkvæmt samningi við Sjúkratryggingar Íslands. Með tilvísun frá lækni greiðir þú komugjald samkvæmt gjaldskrá SÍ og réttindum þínum og Sjúkratryggingar greiða það sem eftir stendur. Þú getur einnig bókað viðtal beint, án tilvísunar.
Við förum yfir rétt þinn og kostnað með þér í viðtalinu áður en ákvörðun er tekin, svo að engar óvæntar greiðslur komi upp.
Tilvísun eða bókun. Tilvísun frá heimilislækni tryggir greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga; þú getur einnig bókað viðtal beint á mínum síðum eða í síma 519 7000.
Viðtal og skoðun. Skurðlæknir skoðar kviðslitið, metur stærð og einkenni og fer yfir aðgerðarkosti með þér. Ómskoðun er gerð ef þörf er á.
Aðgerð og eftirfylgni. Aðgerðin er gerð á skurðstofu Klíníkurinnar, oftast í svæfingu sem dagaðgerð, og flestir fara heim samdægurs. Þú færð skriflegar leiðbeiningar um undirbúning og eftirmeðferð á mínum síðum.
Algengar spurningar
Hvenær þarf að gera aðgerð á kviðsliti?
Er notað net?
Þarf ég að vera svæfð/ur?
Hversu lengi verð ég frá vinnu?










