Þjónustan

Klíníkin

Íslenska

Þjónustan

Íslenska

Þjónustan

Íslenska

Þjónustan

Íslenska

Svæfingar

Svæfingar

Örugg svæfing og deyfing

Örugg svæfing og deyfing

Svæfingalæknar Klíníkurinnar bera ábyrgð á svæfingu, deyfingu og verkjameðferð í tengslum við allar aðgerðir sem framkvæmdar eru hjá okkur – frá undirbúningi til vöknunar.

Svæfingalæknar Klíníkurinnar bera ábyrgð á svæfingu, deyfingu og verkjameðferð í tengslum við allar aðgerðir sem framkvæmdar eru hjá okkur – frá undirbúningi til vöknunar.

Svæfingalæknir við svæfingavél á skurðstofu Klíníkurinnar © Gunnar Svanberg

Svona er þjónustan

Á Klíníkinni starfa sérfræðingar í svæfinga- og gjörgæslulækningum ásamt gjörgæsluhjúkrunarfræðingum. Fjórar skurðstofur og vöknunardeild eru búnar nútímatækjum til vöktunar og teymið vinnur eftir öryggisgátlistum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO Surgical Safety Checklist) við hverja aðgerð.

Við bjóðum upp á svæfingu (almenna deyfingu) þar sem þú sefur alla aðgerðina; mænudeyfingu, sem er algeng við liðskipti og aðgerðir á neðri hluta líkamans, oftast með slævingu svo þér líði vel; taugablokkir (svæðisdeyfingar) með ómstýringu sem deyfa ákveðinn líkamshluta, t.d. öxl, hönd eða fót, og gefa góða verkjastillingu fyrstu klukkustundirnar eftir aðgerð; og staðdeyfingu með eða án slævingar við minni aðgerðir og speglanir.

Eftir aðgerð færð þú fjölþætta verkjameðferð (multimodal) sem miðar að því að lágmarka notkun ópíóíða og hraða bata.

Svæfingalæknir með öndunarbelg á skurðstofu © Gunnar Svanberg

Svona getum við hjálpað þér

Áður en þú kemur í aðgerð svarar þú heilsufarsspurningalista. Svæfingalæknir fer yfir svörin, heilsufarssögu, lyf og ofnæmi og metur hvort frekari rannsókna sé þörf, t.d. blóðprufu eða hjartalínurits. Ef þörf er á símtali eða viðtali hefur svæfingalæknir samband við þig fyrir aðgerðardag.

Enginn fastur matur síðustu 6 klst. fyrir aðgerð. Tærir vökvar (vatn, tær safi, kaffi/te án mjólkur) eru leyfðir til 2 klst. fyrir aðgerð – drekktu vel fram að því. Ekki reykja, nota nikótín eða drekka áfengi síðasta sólarhringinn. Taktu venjuleg lyf að morgni með vatnssopa nema svæfingalæknir gefi önnur fyrirmæli; blóðþynnandi lyf, sykursýkislyf og GLP-1 lyf þarf oft að stöðva eða aðlaga – þú færð sérstakar leiðbeiningar.

Þú hittir svæfingalækninn þinn áður en aðgerð hefst; hann fer yfir svæfingaráætlunina og svarar spurningum. Í aðgerðinni fylgist svæfingateymið stöðugt með öndun, blóðrás og meðvitund. Eftir aðgerð ertu á vöknun undir eftirliti þar til þú ert vel vakandi, verkjastillt/ur og laus við ógleði. Dagaðgerðarsjúklingar fara heim í fylgd fullorðins og eiga ekki að aka fyrsta sólarhringinn; þau sem gista fara yfir á legudeild.

Leiðandi sérfræðingar á sínu sviði

Teymið

Sérfræðingar í fremstu röð og framúrskarandi þjónusta.

Sérfræðingur í svæfinga- og gjörgæslulækningum

Verðskrá og greiðsluþátttaka

Svæfing og deyfing eru hluti af aðgerðarverði og eru ekki gjaldfærð sérstaklega, nema á rammasamningi Sjúkratrygginga við sérfræðilækna. Sjá nánar verðskrá viðkomandi sérgreinar.

Nánar um greiðsluþátttöku sjúklinga er að finna á vef Sjúkratrygginga Íslands: sjukra.is

Hvernig er ferlið?

Hvernig er ferlið?

Fyrir aðgerð. Þú svarar heilsufarsspurningalista og svæfingalæknir metur heilsufar, lyf og ofnæmi. Þú færð leiðbeiningar um föstu og hvaða lyf á að taka eða sleppa að morgni aðgerðardags.

Á aðgerðardag. Svæfingalæknirinn hittir þig áður en aðgerð hefst, fer yfir svæfingaráætlunina og svarar spurningum. Í aðgerðinni fylgist svæfingateymið samfellt með öndun, blóðrás og dýpt svæfingar.

Eftir aðgerð. Á vöknun ertu undir eftirliti þar til þú ert vel vakandi, verkjastillt/ur og laus við ógleði. Dagaðgerðarsjúklingar fara heim í fylgd fullorðins og eiga ekki að aka, taka mikilvægar ákvarðanir eða vera ein fyrsta sólarhringinn; þau sem gista fara yfir á legudeild.

Algengar spurningar

Er svæfing hættuleg?

Get ég vaknað í miðri aðgerð?

Verð ég með ógleði eftir svæfingu?

Hvenær má ég keyra eftir svæfingu eða slævingu?

Klíníkin Ármúla er nútíma læknamiðstöð þar sem sérfræðingar vinna saman að bættri heilsu þinni. Markmið okkar er að vera leiðandi í þróun á öruggri hágæða læknisþjónustu.

Hafðu samband

Ármúla 7–9, 108 Reykjavík

Afgreiðslutími:
Mánudaga - föstudaga
kl. 07:30 - 16:00

Samfélagsmiðlar

© Klíníkin Ármúla ehf. – Öll réttindi áskilin.