
Svona er þjónustan
Undirbúningur fyrir aðgerð: fræðsla um aðgerðina, föstu, lyf og hvað gott er að hafa með sér, ásamt heilsufarsmati og mælingum eftir þörfum.
Eftirlit eftir aðgerð: sáraskoðun, umbúðaskipti, saumataka og heftataka, mat á bólgu, verkjum og gróanda. Sárameðferð flóknari skurðsára og ráðgjöf um húð- og öramyndun.
Símaráðgjöf: hjúkrunarfræðingur svarar spurningum um bata, lyf og einkenni og metur hvort þú þurfir að koma í skoðun eða hitta lækni. Einnig fræðsla og stuðningur, m.a. fyrir aðstandendur, um hjálpartæki, hreyfingu og daglegt líf eftir aðgerð, og aðrar hjúkrunarmeðferðir samkvæmt fyrirmælum læknis.

Svona getum við hjálpað þér
Saumar eða hefti eru oftast tekin 10–14 dögum eftir aðgerð, eftir aðgerð og staðsetningu skurðar. Við skoðum sárið, skiptum um umbúðir og metum gróanda. Í flestum tilvikum má fara í sturtu eftir 24–48 klst. með vatnsheldar umbúðir; forðist bað, sund og heita potta þar til sár er alveg gróið.
Eftir aðgerð færð þú tíma í hjúkrunarmóttöku ef þess þarf – ýmist bókaðan við útskrift eða samkvæmt símtali. Þú getur einnig sjálf/ur haft samband í síma 519 7000 eða í gegnum Mínar síður. Hjúkrunarfræðingur metur erindið og bókar tíma eða vísar til læknis eftir þörfum. Engrar tilvísunar er þörf.
Móttakan er opin mánudaga–föstudaga kl. 08:00–15:30. Ef bráð einkenni koma upp utan opnunartíma – mikill verkur, hiti yfir 38,5 °C, roði og bólga sem fer vaxandi, blæðing eða mæði – skaltu hafa samband við þinn skurðlækni, Læknavaktina í síma 1700 eða Neyðarlínuna 112, allt eftir alvarleika einkenna.
Leiðandi sérfræðingar á sínu sviði
Teymið
Sérfræðingar í fremstu röð og framúrskarandi þjónusta.
Verðskrá
Gjald er tekið fyrir heimsóknir og símaráðgjöf í hjúkrunarmóttöku samkvæmt verðskrá Klíníkurinnar nema þjónustan sé þegar innifalin í verði aðgerðarinnar. Sjá verðskrá.
Hafðu samband. Eftir aðgerð færð þú tíma í hjúkrunarmóttöku ef þess þarf – bókaðan við útskrift eða samkvæmt símtali. Þú getur einnig sjálf/ur haft samband í síma 519 7000 eða í gegnum Mínar síður. Engrar tilvísunar er þörf.
Mat hjúkrunarfræðings. Hjúkrunarfræðingur metur erindið, svarar spurningum í síma eða bókar tíma í skoðun, og vísar til læknis ef þörf er á.
Heimsókn og eftirfylgd. Í móttökunni er sár skoðað, umbúðum skipt, saumar eða hefti tekin og farið yfir næstu skref. Móttakan er opin mánudaga–föstudaga kl. 08:00–15:30.
Algengar spurningar
Þarf ég tilvísun til að koma í hjúkrunarmóttöku?
Hvenær eru saumar eða hefti tekin?
Má ég fara í sturtu með umbúðirnar?
Hvað ef ég er ekki viss um að allt sé í lagi?










