
Svona er legudeildin
Klíníkin er eina einkarekna heilbrigðisstofnunin á Íslandi með leyfi til reksturs legudeildar. Það þýðir að stærri aðgerðir – liðskipti, hryggjaraðgerðir, efnaskiptaaðgerðir, kviðveggslagfæringar (svuntuaðgerðir), kviðsjáraðgerðir í kvenheilsu og brjóstaaðgerðir – eru gerðar hér á staðnum með gistingu, í stað þess að þú þurfir að fara heim sama dag eða á sjúkrahús. Fyrir kviðveggslagfæringar (svuntuaðgerðir) er Klíníkin eina skurðstofueiningin á Íslandi utan sjúkrahúsa sem getur boðið upp á innlögn á legudeild og eftirlit eftir aðgerð.
Hjúkrunarfræðingar eru á vakt allan sólarhringinn meðan á legu stendur og læknir er á bakvakt. Á deildinni eru bæði einbýli og tvíbýli. Eftir liðskipti kemur sjúkraþjálfari til þín daginn eftir aðgerð og þú færð einstaklingsmiðaða endurhæfingaráætlun með þér heim.
Flestir sem fara í liðskipti, hryggþrengslaaðgerð , efnaskiptaaðgerð eða kviðveggslagfæringu (svuntuaðgerð) gista eina nótt. Ein legunótt er innifalin í verði aðgerða þar sem hún er hluti af meðferð; aukanótt kostar 94.000 kr.

Svona getum við hjálpað þér
Meðan þú liggur inni er hjúkrunarfræðingur á vakt allan sólarhringinn og læknir á bakvakt – þú ert aldrei ein/n með áhyggjur eða verki. Legudeildin er opin frá mánudagsmorgni til föstudags.
Flestir gista eina nótt eftir aðgerð, t.d. eftir liðskipti, hryggþrengslaaðgerðir, efnaskiptaaðgerðir og stærri lýtaaðgerðir. Ein nótt er innifalin í aðgerðarverði þar sem lega er nauðsynleg; margar minni aðgerðir eru dagaðgerðir.
Létt og þægileg föt sem auðvelt er að klæða sig í, inniskó, snyrtivörur, lyfin þín í upprunalegum umbúðum og hleðslusnúrur. Gott er að taka með lesefni eða aðra afþreyingu (síma/spjaldtölvu), þar sem ekki eru sjónvörp á herbergjum. Þarft þú hækjur eftir aðgerð útvegar þú þær sjálf/ur fyrirfram, í apóteki eða hjá sjúkraþjálfara. Skildu verðmæti eftir heima – sjúkrafatnað fáið þið hjá okkur.
Verðskrá
Ein legunótt er innifalin í verði þeirra aðgerða þar sem gisting er hluti af meðferðinni – til dæmis liðskipta, hryggþrengslaaðgerða og efnaskiptaaðgerða. Þurfi lengri legu er aukanótt greidd sérstaklega: 94.000 kr.
Þegar aðgerð er gerð samkvæmt samningi við Sjúkratryggingar Íslands fer greiðsluþátttaka sjúklings eftir gjaldskrá SÍ og legan er innifalin.
Nánar um greiðsluþátttöku sjúklinga er að finna á vef Sjúkratrygginga Íslands: sjukra.is
Innlögn
Þú mætir á umsömdum tíma á aðgerðardag, fastandi samkvæmt leiðbeiningum. Hjúkrunarfræðingur tekur á móti þér, fer yfir lyfin þín og undirbýr þig fyrir aðgerðina. Að aðgerð lokinni vaknar þú á vöknun og ferð síðan á legudeildina.
Legan
Á legudeildinni ertu undir eftirliti hjúkrunarfræðinga allan sólarhringinn og læknir er á bakvakt. Verkjameðferð er stillt af eftir þörfum og eftir liðskipti kemur sjúkraþjálfari til þín daginn eftir aðgerð til að koma þér af stað.
Útskrift
Útskrift er að jafnaði kl. 9:30 daginn eftir aðgerð. Hjúkrunarfræðingur fer þá yfir leiðbeiningar með þér: umhirðu sára, verkjalyf, æfingar og hvað gildir um sturtu, akstur og vinnu. Leiðbeiningar og eftirfylgdartímar birtast á Mínum síðum, og ef eitthvað kemur upp hringir þú í 519 7000.
Algengar spurningar
Hversu lengi gisti ég eftir aðgerð?
Má aðstandandi vera hjá mér?
Hvað á ég að taka með mér á legudeildina?
Hvert hringi ég ef eitthvað kemur upp eftir útskrift?




