Þjónustan

Klíníkin

Icelandic

Þjónustan

Icelandic

Þjónustan

Icelandic

Þjónustan

Icelandic

Liðskiptaklíníkin

Liðskiptaklíníkin

Slitinn liður í mjöðm eða hné?

Slitinn liður í mjöðm eða hné?

Klíníkin framkvæmir liðskipti á mjöðmum og hnjám og liðspeglanir á hnjám.

Klíníkin framkvæmir liðspeglanir og liðskipti, bæði á hné og mjöðm

Klíníkin framkvæmir liðspeglanir og liðskipti, bæði á hné og mjöðm

Three doctors in white coats standing confidently.

Þetta meðhöndlum við

Slitgigt í mjöðm eða hné veldur verkjum, stirðleika og skertri hreyfigetu sem hefur áhrif á svefn, vinnu og daglegt líf. Þegar önnur meðferð – þjálfun, þyngdarstjórnun, verkjalyf og sprautumeðferð – dugar ekki lengur getur liðskiptaaðgerð gefið þér lífsgæðin aftur.

Á Klíníkinni gerum við liðskipti á mjöðmum og hnjám með reyndu teymi bæklunarskurðlækna, svæfingalækna, hjúkrunarfræðinga og sjúkraþjálfara. Aðgerðirnar eru gerðar á skurðstofum okkar og þú dvelur á legudeildinni í einbýli þar til þú ert tilbúin/n heim – oftast eftir einn til tvo daga.

Við bjóðum einnig liðspeglanir á hnjám og APS-meðferð við einkennum slitgigtar. Aðgerð með greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga Íslands krefst tilvísunar; þú getur einnig valið að greiða sjálf/ur – sjá kaflann um biðtíma hér að neðan.

Röntgenmynd af hnéliðum

Slitgigt

Slitgigt er vegna ójafnvægis í niðurbroti og endurbyggingu liðbrjósks, þannig verður liðbrjóskið þynnra og liðurinn fer að mynda beinnabba við liðbrúnir sem skerðir hreyfigetu liðsins. Þegar liðskemmdirnar eru orðnar miklar er oft allt liðbrjósk horfið sem veldur því að beinið er bert, á sama tíma breytist magn og gæði liðvökvans þannig að liðurinn bólgnar upp við álag. Þetta er ástæða þriggja helstu einkenna slitgigtar:

  • Verkir við álag

  • Skert hreyfigeta

  • Stirðleiki

Ástæða þess að sum okkar þróa með sér slitgigt er að mestu óþekkt. Það er þó ljóst að ástæðan er fjölþætt og sjaldan er eingöngu ein ástæða þar að baki. Nokkrir áhættuþættir eru vel þekktir:

  • Kyn (konur eru í meiri áhættu að þjást af slitgigt en menn)

  • Aldur (liðbrjóskið eins og aðrir vefir líkamans verða fyrir öldrun og tapa gæðum)

  • Þyngd (offituvandamál eykur líkur á slitgigt, sérstaklega í hnjám)

  • Fyrri áverkar (brot eða alvarlegir liðbandaáverkar)

Slitgigt er mjög algeng, þannig er greinanleg slitgigt á röntgenmynd hjá um 5% af einstaklingum á aldrinum 35-54 ára. Slitgigt fer vaxandi með aldri, hlutfall þeirra sem eldri eru en 65 ára og þjást af slitgigt er hátt. Þó er það ekki þannig að allir sem hafa slitbreytingar hafi einkenni af sjúkdómnum. 

Svona getum við hjálpað þér

Aðgerð sem bætir lífsgæði einstaklinga, markmiðið er að verkir frá liðnum heyri sögunni til og hreyfifærni verði betri.

Aðgerð sem bætir lífsgæði einstaklinga, markmiðið er að verkir frá liðnum heyri sögunni til og hreyfifærni verði betri.

Gerð með litlum götum á hnéliðinn þar sem farið er inn með myndavél og verkfæri bæði til greiningar og meðferðar.

Gerð með litlum götum á hnéliðinn þar sem farið er inn með myndavél og verkfæri bæði til greiningar og meðferðar.

Nýjung í einkennameðferð slitgigtar og liðskemmda.

Nýjung í einkennameðferð slitgigtar og liðskemmda.

Leiðandi sérfræðingar á sínu sviði

Teymið

Sérfræðingar í fremstu röð og framúrskarandi þjónusta.

Sérfræðingur í bæklunarlækningum

Sérfræðingur í bæklunarlækningum

Sérfræðingur í bæklunarlækningum

Sjúkraþjálfari

Sjúkraþjálfari

Sjúkraþjálfari

Sjúkraþjálfari

Sérfræðingur í bæklunarlækningum

Sérfræðingur í bæklunarlækningum

Sérfræðingur í bæklunarlækningum

Sjúkraþjálfari

Verðskrá

Aðgerðir Bæklunarklíníkurinnar eru flestar framkvæmdar skv. samningi Læknafélags Reykjavíkur við Sjúkratrygginga Íslands en upplýsingar um greiðsluþátttöku sjúklinga er að finna á vef Sjúkratrygginga Íslands: sjukra.is

Aftur á móti er samningur um liðskiptaaðgerðir á milli Klíníkurinnar og Sjúkratrygginga Íslands. Þar er magn aðgerða takmarkað þannig að Klíníkin býður einnig upp á aðgerðir án greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga.

Aðgerð

Verð frá

Liðskipti hné án greiðsluþáttöku SÍ

1.525.000

Liðskipti mjöðm án greiðsluþáttöku SÍ

1.525.000

APS meðferð

129.000

Auka legunótt

94.000

Liðskipti mjöðm, ef á samningi við SÍ

Full greiðsluþátttaka SÍ

Liðskipti hné, ef á samningi við SÍ

Full greiðsluþátttaka SÍ

Innritunarviðtal v/liðskipta án greiðsluþáttöku SÍ

27.000

Hvað þarf ég að bíða lengi?

Bið eftir liðskiptaaðgerð fer eftir því hvar þú ert á biðlista og hvort aðgerðin er greidd af Sjúkratryggingum Íslands (SÍ) eða þér sjálfum. Embætti landlæknis heldur utan um biðlista allra stofnana og birtir tölurnar í mælaborðinu hér að neðan. Það er uppfært mánaðarlega og sýnir bæði fjölda þeirra sem bíða eftir liðskiptaaðgerð á mjöðm eða hné og hve lengi þeir hafa beðið – á Klíníkinni og annars staðar á landinu. Viðmið embættisins er að enginn þurfi að bíða lengur en 90 daga eftir aðgerð.

Heimild: Embætti landlæknis – mælaborð liðskiptaaðgerða. Tölurnar eru uppfærðar mánaðarlega af embættinu og ná til allra stofnana á Íslandi. Opna mælaborðið í fullri stærð.

Aðgerð með greiðsluþátttöku SÍ

Klíníkin er með samning við Sjúkratryggingar Íslands um liðskiptaaðgerðir á mjöðm og hné. Sé skilyrðum SÍ fullnægt greiða Sjúkratryggingar aðgerðina og þú greiðir einungis komugjald samkvæmt reglugerð um greiðsluþátttöku sjúkratryggðra. Skilyrðin eru í stuttu máli þau að bæklunarlæknir hafi metið að liðskiptaaðgerð sé rétta meðferðin og þú sért á biðlista eftir aðgerð, að þú sért sjúkratryggð/ur á Íslandi og að fjöldi aðgerða á samningi ársins sé ekki uppurinn – þeir sem hafa beðið lengst ganga fyrir.

Við förum yfir stöðu þína í fyrsta viðtali og segjum þér strax hvort og hvenær þú átt rétt á greiðsluþátttöku SÍ. Þú þarft ekki að reikna þetta út sjálf/ur.

Vilt þú ekki bíða?

Hafir þú ekki öðlast rétt til greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga getur þú valið að greiða aðgerðina sjálf/ur og fá hana gerða fyrr. Sama teymi, sama skurðstofa og sama legudeild; eini munurinn er hver greiðir. Verðið er í verðskránni hér að ofan.

Athugaðu að samkvæmt samningi Klíníkurinnar við Sjúkratryggingar Íslands er okkur ekki heimilt að gera aðgerð gegn sjálfsgreiðslu á þeim sem þegar eiga rétt á greiðsluþátttöku SÍ. Við förum yfir rétt þinn með þér áður en ákvörðun er tekin.

Ertu með spurningar?

Bókaðu viðtal

Ekki hika við að hafa samband.

A male doctor holding a clipboard, ready to provide medical care and record patient information.

Ertu með spurningar?

Bókaðu viðtal

Ekki hika við að hafa samband.

A male doctor holding a clipboard, ready to provide medical care and record patient information.

Ertu með spurningar?

Bókaðu viðtal

Ekki hika við að hafa samband.

A male doctor holding a clipboard, ready to provide medical care and record patient information.

Klíníkin Ármúla er nútíma læknamiðstöð þar sem sérfræðingar vinna saman að bættri heilsu þinni. Markmið okkar er að vera leiðandi í þróun á öruggri hágæða læknisþjónustu.

Hafðu samband

Ármúla 7, 108 Reykjavík

Afgreiðslutími:
Mánudaga - föstudaga
kl. 07:30 - 16:00

Samfélagsmiðlar

© Klíníkin Ármúla ehf. – Öll réttindi áskilin.

Klíníkin Ármúla er nútíma læknamiðstöð þar sem sérfræðingar vinna saman að bættri heilsu þinni. Markmið okkar er að vera leiðandi í þróun á öruggri hágæða læknisþjónustu.

Hafðu samband

Ármúla 7, 108 Reykjavík

Afgreiðslutími:
Mánudaga - föstudaga
kl. 07:30 - 16:00

Samfélagsmiðlar

© Klíníkin Ármúla ehf. – Öll réttindi áskilin.

Klíníkin Ármúla er nútíma læknamiðstöð þar sem sérfræðingar vinna saman að bættri heilsu þinni. Markmið okkar er að vera leiðandi í þróun á öruggri hágæða læknisþjónustu.

Hafðu samband

Ármúla 7, 108 Reykjavík

Afgreiðslutími:
Mánudaga - föstudaga
kl. 07:30 - 16:00

Samfélagsmiðlar

© Klíníkin Ármúla ehf. – Öll réttindi áskilin.