
Þetta getur þú gert á mínum síðum
Bóka, breyta og afbóka tíma. Þú sérð lausa tíma hjá þínum lækni eða meðferðaraðila og bókar beint. Þurfir þú að færa tímann gerir þú það sjálf/ur, án þess að hringja. Mundu að afbóka fyrir kl. 14:00 daginn áður – annars er tekið gjald fyrir tímann.
Svara spurningalistum fyrir komu. Fyrir viðtal eða aðgerð biðjum við þig oft að svara nokkrum spurningum um heilsufar, lyf og ofnæmi. Svörin fara beint í sjúkraskrána þína og viðtalið nýtist betur.
Greiða reikninga. Reikningar fyrir viðtöl, meðferðir og aðgerðir birtast á mínum síðum og þú greiðir þá með korti á staðnum.
Undirrita skjöl rafrænt. Samþykki fyrir aðgerð og önnur skjöl undirritar þú með rafrænum skilríkjum – ekkert prent, engin bið.
Sjá niðurstöður og skjöl. Niðurstöður rannsókna, læknabréf og leiðbeiningar sem læknirinn þinn hefur birt þér.
Senda skilaboð. Skilaboð til Klíníkurinnar fara um dulkóðaða leið – aldrei með venjulegum tölvupósti. Gjald er tekið fyrir rafræn samskipti samkvæmt gjaldskrá Sjúkratrygginga Íslands.


Mínar síður eða Heilsuvera?
Bæði kerfin eru þín. Mínar síður Klíníkurinnar (app.medalia.is) eru fyrir allt sem snýr að Klíníkinni: tímabókanir, spurningalista, reikninga, skjöl og skilaboð til okkar.
Heilsuvera (heilsuvera.is) er landsgátt heilbrigðiskerfisins þar sem þú sérð lyfseðla, bólusetningar og sjúkraskrárupplýsingar frá öllum heilbrigðisstofnunum – þar á meðal frá okkur. Lyfseðlar sem læknar Klíníkurinnar gefa út birtast í Heilsuveru.
Þá byrjar þú á því að senda okkur beiðni um viðtal eða hringja í 519 7000. Þegar þú hefur verið skráð/ur hjá okkur opnast mínar síður fyrir þig sjálfkrafa og þú skráir þig inn með rafrænum skilríkjum.
Aðstandendur geta ekki bókað fyrir þig á mínum síðum því þær eru bundnar þínum skilríkjum – þá er bókað í síma eða í móttöku.
Algengar spurningar
Ég er ekki með rafræn skilríki – hvað geri ég?
Ég sé ekki lausa tíma hjá lækninum mínum.
Þarf tilvísun?
Er þetta öruggt?


