
LIÐSKIPTAAÐGERÐ Á MJÖÐM
Liðskiptaaðgerð er endanlegt meðferðarúrræði liðskemmdar. Engin lyf eru til í dag sem snúa við þróun liðskemmda, þessa vegna þurfa sumir að gangast undir liðskipti til að fá bót sinna meina. Alltaf er þó reynt fyrst með einkennaminnkandi meðferð, svo sem reglulegri hreyfingu, þyngdarstjórnun og meðferð með bólgueyðandi lyfjum. Sumir finna einnig fyrir bættum lífsgæðum við að nota hnéspelkur við álag.
Liðskipti á mjöðm er aðgerð sem bætir lífsgæði einstaklinga, markmiðið er að verkir frá liðnum heyri sögunni til og hreyfifærni verði betri. Við framkvæmum tvær tegundir liðskipta á mjöðm. Annars vegar þar sem ígræðin eru steypt föst og hins vegar með ósteyptum ígræðum, þar sem beinið vex fast við ígræðið.
Yfir 95% einstaklinga sem gangast undir liðskipti hafa enn sama lið 10 árum síðar, ending gerviliða fer batnandi.
Samingur um liðskiptaaðgerðir við Sjúkratryggingar Íslands tryggir þeim er hafa verið á biðlista eftir liðskiptum á mjöðm í 9 mánuði eða lengur fulla greiðsluþáttöku. Þeir sem ekki eru á biðlista eða hafa ekki náð þeim mörkum að hafa beðið í 9 mánuði hafa þann kost að greiða sína aðgerð sjálfir ef bið er óásættanleg.

UPPLÝSINGAR UM LIÐSKIPTAAÐGERÐ:
Aðgerðartími:
Svæfing/slæving:
Tími á Klíníkinni:
Veikindaleyfi:
Verð, ef á biðlista >9 mán:
Verð, ef ekki á biðlista >9 mán:
U.þ.b. 60 - 90 mínútur
Slæving og mænudeyfing
Gisting í eina nótt
2-3 mánuðir
Full greiðsluþátttaka Sjúkratrygginga
Frá 1.200.000kr


TÍMABÓKUN
Þú getur bókað tíma hjá sérfræðingunum okkar í síma
519700 eða á heimasíðu Heilsuveru. Einnig getur heimilislæknir þinn sent okkur rafræna tilvísun og í kjölfarið þess munum bóka þig til viðtals og skoðunar.
VIÐTAL OG SKOÐUN
Þegar þú kemur til viðtals og skoðunar förum við sameiginlega yfir þinn heilsufarsvanda til að greina orsök. Byggt á mati læknisins, komið þið að sameiginlegri ákvörðun um meðferðarúrræði sem getur falist í sjúkraþjálfun, skurðaðgerð eða öðrum aðgerðum. Stundum þarf viðbótarrannsókn eins og röntgenmynd eða sýnatöku til að ákvarða hvaða meðferð hentar þér best. Ef nauðsyn krefur getur þú snúið aftur til læknisins til að fylgja eftir meðferð sem hafin er eða ákveðið skurðaðgerð.
INNRITUN
Um 1-2 vikum fyrir aðgerðina kemur þú í innritunarsamtal þar sem farið er yfir þína heilsufarssögu, hjartalínurit er tekið og farið er yfir niðurstöður úr blóðrannsóknum. Þar hittir þú bæði lækni og hjúkunarfræðing. Við biðjum þig um að svara ítarlegum spurningalista sem metur þína færni og verki við athafnir daglegs lífs.

UNDIRBÚNINGUR
Við leggjum áherslu á að þú sért vel undirbúin/-nn fyrir aðgerðina. Mikilvægt er að meðferð þeirra sjúkdóma sem þú glímir við sé eins góð og möguleg er, þetta á sérstaklega við þig sem ert með sykursýki, hjarta- eða lungnasjúkdóma. Einnig er mikilvægt að sjúkraþjálfun sé regluleg og að þú sért búin/-nn að læra að nota hækjur, okkar sjúkraþjálfarar hjálpa þér með þetta. Okkar sjúkraþjálfarar eru frá Atlas-Endurhæfingu og haft verður samband við þig um viku fyrir aðgerð. Mikilvægt er einnig að heimilið sé tilbúið þannig að þér líði sem best heima eftir aðgerðina. Gott ráð er að fjarlægja lausar mottur þar sem þær geta verið fallvaldur.
AÐGERÐ
Þú kemur til okkar að morgni aðgerðardags, þú færð öll fyrirmæli um hvenær þú mætir og hvenær þú átt að byrja að fasta við innritun. Sjálf aðgerðin tekur um 1-1,5 klst. Eftir aðgerðina ertu fyrst á vöknun þar sem fylgst er náið með hvernig þér líður. Leið og þú ert vel vöknuð/vaknaður og engin ógleði er til staðar færðu að borða og síðan er komið að því að þú fáir að koma á fætur og byrja að reyna á nýja liðinn. Fyrsta fótaferð er að ganga á klósettið, þetta gerir þú með hjálp okkar og göngugrindar eða með hækjum. Þú færð svo fljótlega að fara upp á herbergi þar sem hjúkrunarfræðingur legudeildar tekur á móti þér. Flestir eru heimferðarfærir eftir eina nótt, það fer þó eftir hvernig þér gengur með endurhæfinguna, að verkjastilling sé í lagi og engin ógleði sé til staðar.
EFTIRFYLGD
Þú kemur í saumatöku um tveimur vikum eftir aðgerð þar sem hefti eða saumar eru fjarlægðir og eftirlit er á sárinu. Þú heldur áfram í sjúkraþjálfun eins lengi og þörf er á. Lokamat hjá þínum aðgerðarlækni er 6-10 vikum eftir aðgerð. Við viljum vita hvernig þér líður, þér er alltaf velkomið að hafa samband við okkur á Klíníkinni. Þú mátt síðan eiga von á að við sendum þér spurningarlista um hvernig til hefur tekist í kjölfar endurhæfingar.
LEIÐANDI SÉRFRÆÐINGAR Á SÍNU SVIÐI

HJÁLMAR
ÞORSTEINSSON
Bæklunarskurðlæknir
Bæklunarskurðlæknir með sérhæfingu í
liðskiptaaðgerðum á mjöðmum og hnjám.
Sinnir einnig öllum almennum bæklunarlækningum
bæði hvað varðar greiningu, meðferð og aðgerðir.

INGI HRAFN
GUÐMUNDSSON
Bæklunarskurðlæknir
Bæklunarskurðlæknir með sérhæfingu í
handar- og fótaraðgerðum, liðspeglanir á hné sem og liðskiptaaðgerðum á mjöðmum og hnjám.
Sinnir einnig öllum almennum bæklunarlækningum
bæði hvað varðar greiningu, meðferð og aðgerðir.

JÓNAS FRANKLÍN
Bæklunarskurðlæknir
Bæklunarskurðlæknir með sérhæfingu í
liðskiptaaðgerðum á mjöðmum og hnjám.
Sinnir einnig öllum almennum bæklunarlækningum
bæði hvað varðar greiningu, meðferð og aðgerðir.