Starfsfólk
Njáll Vikar Smárason
Sérfræðingur í bæklunarlækningum
Njáll Vikar er bæklunarskurðlæknir með áherslu á hryggjarvandmál.
Njáll Vikar nam læknisfræði við Læknadeild Háskóla Íslands og lauk embættisprófi árið 2011 og hlaut almennt lækningaleyfi árið 2012, eftir kandídatsár á Sjúkrahúsinu á Akranesi.
Í sérnámi sínu í bæklunarskurðlækningum við Sjúkrahúsið í Halmstad í Svíþjóð lagði hann snemma áherslu á bakvandamál og almennar hryggjarskurðlækningar og hlaut réttindi sem bæklunarskurðlæknir í Svíþjóð árið 2019 og bauðst honum að koma á Háskólasjúkrahúsið á Skáni (Malmö/Lund) og starfa þar sem hryggjarskurðlæknir og vann hann þar sem sérfræðingur á hryggjarskurðdeildinni í Malmö, allt þar til fjölskyldan fluttist heim til Íslands haustið 2020.
Njáll Vikar vann þá bæði í heilsugæslu og í Orkuhúsinu en snéri þó fljótlega aftur á hryggjarskurðdeildina í Malmö og ferðaðist reglulega milli Íslands og Svíþjóðar, þar til hann hóf störf við Klíníkina vorið 2024.