Starfsfólk
Ingi Hrafn Guðmundsson
Sérfræðingur í bæklunarlækningum
Ingi Hrafn ólst upp á Seltjarnarnesi. Hann nam læknisfræði við Læknadeild Háskóla Íslands og lauk embættisprófi 2008 og fékk almennt lækningaleyfi á Íslandi 2009 eftir kandídatsár á Landspítalanum. Ingi Hrafn starfaði sem deildarlæknir á Sjúkrahúsinu á Akranesi 2009-2010 og á bæklunardeild LSH 2010-2011. Í ársbyrjun 2012 hélt hann til Borås í Svíþjóð í sérnám og lauk sérnámi sínu árið 2016.
Ingi Hrafn starfaði sem sérfræðingur á Södra Älvsborgs sjúkrahúsinu í Borås í þrjú ár eftir að sérnám lauk. Hann fluttist heim til Íslands sumarið 2019 og hóf störf á Klíníkinni og á bæklunardeild HVE á Akranesi. Hann hætti störfum á Akranesi haustið 2025 og starfar nú alfarið á Klíníkinni.


