Fróðleikur
Hagnýt matreiðslunámskeið
Hollur matur á annasömum dögum

Hollur matur á annasömum dögum.
Í samstarfi við Dóru Svavarsdóttur, matreiðslumeistara, bjóðum við upp á tvö hagnýt matreiðslunámskeið fyrir þá sem vilja einfalda matargerðina, skipuleggja mataræðið betur og útbúa bragðgóðan og næringarríkan mat. Skráning hér!
Námskeiðin henta öllum sem vilja öðlast meira öryggi í eldhúsinu, draga úr matarsóun og læra að laga uppskriftir að mismunandi matarvenjum þegar tíminn er naumur.
Hollur matur á annasömum dögum
Þriðjudagur 1. september 2026 | kl. 17:00–22:00
Á þessu verklega námskeiði lærir þú hvernig hægt er að skipuleggja máltíðir fyrir vikuna, útbúa hollt nesti og millimál og nýta hráefni á sem hagkvæmastan hátt. Farið verður yfir geymslu matvæla, skipulag og leiðir til að draga úr matarsóun.
Við eldum saman fjölbreytta og næringarríka rétti sem henta annasömu lífi og njótum þeirra saman í lok kvöldsins.
---
Næring í nútímanum - veislur og mannfagnaður
Þriðjudagur 15. september 2026 | kl. 17:00–22:00
Hvernig er hægt að útbúa veislumat sem er bæði bragðgóður og næringarríkur? Á þessu námskeiði skoðum við hvernig hægt er að aðlaga uppskriftir að óþoli, ofnæmi eða öðrum næringarþörfum án þess að fórna bragði eða gleði.
Við eldum saman fallega og bragðgóða veislurétti, lærum að skipta út hráefnum á einfaldan hátt og finnum lausnir sem henta allri fjölskyldunni.
Sérstök fræðsla
Á báðum námskeiðum verða Bríet Birgisdóttir og Rut Eiríksdóttir, hjúkrunarfræðingar með áralanga reynslu af næringarráðgjöf og lífsstílsbreytingum, með stutta fræðslu og opið spjall um meðvitað mataræði. Þar verður meðal annars fjallað um hvernig við getum aukið nærveru við máltíðir, hlustað betur á merki líkamans og byggt upp heilbrigðara og ánægjulegra samband við mat.
Innifalið
Verkleg matreiðsla undir leiðsögn Dóru Svavarsdóttur
Stutt fræðsla um meðvitað mataræði með Bríeti Birgisdóttur og Rut Eiríksdóttur
Sameiginleg máltíð í lok námskeiðsins
Þátttakendur eru hvattir til að taka með sér box og taka afgangana með sér heim
Veglegt rafrænt uppskriftahefti fylgir með
Kennarar:
Dóra Svavarsdóttir er matreiðslumeistari með yfir 20 ára reynslu af kennslu fyrir fullorðna. Hún hefur sérhæft sig í grænmetisfæði, fæðuóþoli og breyttum matarvenjum. Dóra rak um árabil Á næstu grösum grænmetisveitingastað og Culina veisluþjónustu og kennir í dag við Hótel- og matvælaskólann í Kópavogi.
Bríet Birgisdóttir og Rut Eiríksdóttir eru hjúkrunarfræðingar með víðtæka reynslu af ráðgjöf á sviði næringar, offitumeðferðar og lífsstílsbreytinga. Þær leggja áherslu á meðvitaða nálgun að mat, sjálfsumhyggju og raunhæfar leiðir til að styðja við varanlegar og heilbrigðar matarvenjur.
Staðsetning:
Hússtjórnarskóli Reykjavíkur
Sólvallagata 12, 101 Reykjavík
Verð:
Eitt námskeið: 21.900 kr.
Bæði námskeiðin: 31.900 kr.
Takmarkaður fjöldi: Hámark 14. manns pr. námskeið.
Hvort námskeið stendur sjálfstætt en saman mynda þau heildstæða og hagnýta leið til að einfalda matargerðina, efla meðvitaða nálgun að mat og byggja upp næringarríkar matarvenjur sem styðja við heilsu og vellíðan til framtíðar.



