Fréttir og fræðsla
Nýr læknir á Klíníkinni
Nýr læknir hefur hafið störf á Klíníkinni
Í vikunni mun Kristín Jónsdóttir læknir hefja störf á Klíníkinni en hún er almennur skurðlæknir sem jafnframt er með áherslu á vandamál tengd neðri melingarvegi.
Kristín lauk embættisprófi frá Háskóla Íslands árið 2006. Hún bjó og starfaði í Svíþjóð í 11 ár. Fyrst í Västerås þar sem hún hlaut sérfræðiréttindi í almennum skurðlækningum árið 2016 og síðan í Uppsala þar sem hún starfaði sem sérfræðingur í skurðlækningum neðri meltingarvegar.
Samhliða störfum sínum á Klíníkinni mun Kristín starfa sem skurðlæknir á Sjúkrahúsinu á Akureyri.
Kristín tekur að sér margvísleg vandamál. Helst má nefna nára- og naflakviðslit, gallblöðruaðgerðir og aðgerðir vegna tvíburabróður. Hún tekur einnig að sér vandamál tengd ristli og endaþarmi, t.d. gyllinæð, endaþarmssprungu (fissura ani), fistlum, hægðatreglu og hægðaleka.
Bjóðum Kristínu hjartanlega velkomna til starfa!








