Fréttir og fræðsla
Langtímasamningar um lýðheilsuaðgerðir
Klíníkin fagnar nýjum langtímasamningi við Sjúkratryggingar Íslands sem tryggir fjölgun aðgerða og styttri biðlista.
Klíníkin Ármúla ehf. hefur undirritað þriggja ára samning við Sjúkratryggingar Íslands um framkvæmd á liðskipta-, bak-, kviðsjár- og brjóstaminnkunaraðgerðum. Samningurinn, sem er sá fyrsti sinnar tegundar, er afrakstur opins innkaupaferlis og markar tímamót í samstarfi ríkisins við einkarekna heilbrigðisþjónustu.
Helsta markmið samningsins er að bæta aðgengi sjúklinga að nauðsynlegri þjónustu, stytta biðlista og létta álagi af opinberum sjúkrahúsum. Með samningnum er tryggð framkvæmd á um 1.000 skurðaðgerðum á ársgrundvelli, þar sem Klíníkin mun gegna lykilhlutverki í framkvæmd liðskipta- og annarra tilgreindra aðgerða.
Fyrir sjúklinga þýðir þessi nýi samningur aukinn fyrirsjáanleika og greiðari aðgang að mikilvægum og lífsbætandi aðgerðum með greiðsluþátttöku sjúkratrygginga.
Heilbrigðisráðherra, Alma D. Möller, fagnar þessum samningum þar sem hagsmunir sjúklinga, gæði þjónustunnar og hagkvæmni eru höfð í fyrirrúmi.
Klíníkin er stolt af því trausti sem okkur er sýnt með þessum samningi og lítur björtum augum til framtíðar í þjónustu við sjúklinga á Íslandi. Við erum reiðubúin að takast á við þetta mikilvæga verkefni í samstarfi við Sjúkratryggingar Íslands til að tryggja landsmönnum bestu heilbrigðisþjónustu sem völ er á.
Sjá nánar um liðskiptaaðgerðir á Klíníkinni hér: https://www.klinikin.is/baeklun-lidskipti/lidskiptaadgerd
Sjá nánar um bak- og taugaaðgerðir á Klíníkinni hér: https://www.klinikin.is/bak

Nýlegar fréttir og fræðsla

Fréttatilkynning
Efnaskiptaaðgerðir á vegum ríkisins hefjast hjá Klíníkinni Ármúla

Gæðaskýrsla Klíníkurinnar fyrir árið 2025
Fáar djúpar sýkingar eftir liðskipti og 97,6 % ánægja. Gæðaskýrsla ársins 2025 er komin út.

Komugjöld sjúkraþjálfunar
Ný komugjöld á sjúkraþjálfun taka gildi 1. september skv. reglugerð

Handaskurðlæknir til Klíníkurinnar
Drífa Frostadóttir bætist í hóp lækna Klíníkurinnar



