Fréttir og fræðsla
Húðlæknar á Klíníkinni
Tveir húðlæknar hafa hafið störf á Klíníkinni!
Þær Arna Björk Kristinsdóttir og Brynja Vala Bjarnadóttir hafa hafið störf á Klíníkinni Ármúla!
Brynja og Arna lærðu báðar húðlækningar í Svíþjóð og störfuðu þar í nokkur ár að loknu sérnámi. Þær hafa starfað á Húðlæknastöðinni undanfarin ár og eru nú komnar á Klíníkina.
Þær sinna öllum helstu húðvandamálum, svo sem bólum, rósroða, húðkrabbameinum o.þ.h. Þær bjóða einnig upp á meðferðir með toxínum og fylliefnum.
Allar tímabókanir Örnu og Brynju hafa verið fluttar yfir til Klíníkurinnar frá Húðlæknastöðinni og þeir skjólstæðingar sem áttu bókaðan tíma á Húðlæknastöðinni munu mæta í tímann sinn á Klíníkinni. Verið er að vinna í því að endurbóka þá skjólstæðinga sem misstu af tímanum sínum á Húðlæknastöðinni.
Við bendum annars á að það er hægt að sjá yfirlit yfir tímabókanir inn á heilsuveru.is.
Við bjóðum þær hjartanlega velkomnar til starfa!

Nýlegar fréttir og fræðsla

Fréttatilkynning
Efnaskiptaaðgerðir á vegum ríkisins hefjast hjá Klíníkinni Ármúla

Gæðaskýrsla Klíníkurinnar fyrir árið 2025
Fáar djúpar sýkingar eftir liðskipti og 97,6 % ánægja. Gæðaskýrsla ársins 2025 er komin út.

Komugjöld sjúkraþjálfunar
Ný komugjöld á sjúkraþjálfun taka gildi 1. september skv. reglugerð

Handaskurðlæknir til Klíníkurinnar
Drífa Frostadóttir bætist í hóp lækna Klíníkurinnar



