Fréttir og fræðsla

Þjónustukönnun - endómetríósa

Góður árangur af endómetríósuaðgerðum — niðurstöður þjónustukönnunar

Í júlí 2026 var gerð þjónustukönnun meðal kvenna sem gengust undir aðgerð vegna endómetríósu á Klíníkinni á árinu 2025. Öll svör voru ópersónugreinanleg.

Alls svöruðu 83 konur, að jafnaði um 14 mánuðum eftir aðgerð. Spurt var um verki, fjarveru frá vinnu eða skóla, lífsgæði, meðferð, fylgikvilla, frjósemi og ánægju með þjónustuna.

Helstu niðurstöður

  • Verkir minnkuðu verulega: Miðgildi versta verkjar fór úr 9 af 10 fyrir aðgerð í 5 af 10 við eftirfylgni. 92% svarenda töldu sig hafa minni verki en fyrir aðgerð og rúmlega helmingur upplifði að minnsta kosti helmings minnkun.

  • Fjarvera frá vinnu og skóla nánast hvarf: Miðgildi fjarverudaga vegna endómetríósu fór úr 5 dögum á hverjum fjórum vikum í engan dag, og 76% svarenda höfðu enga fjarveru síðustu fjórar vikurnar.

  • Einkenni bötnuðu hjá flestum: 80% svarenda sögðu einkenni sín betri eða mun betri en fyrir aðgerð.

  • Fylgikvillar voru fátíðir og vægir: 6% fengu sýkingu innan 90 daga frá aðgerð, oftast væga sárasýkingu sem læknaðist með sýklalyfjum og 2,5% gengust undir eða áttu bókaða enduraðgerð. Enginn svarandi greindi frá alvarlegum fylgikvilla.

  • Ánægja með þjónustuna var mikil: 94% svarenda gáfu heildarþjónustunni einkunnina 4 eða 5 af 5.

Við á Klíníkinni erum ánægð með þessar niðurstöður. Þær sýna svo ekki verður um villst að aðgerð getur hjálpað mikið í vissum tilfellum — verkir minnkuðu verulega hjá langflestum, fjarvera frá vinnu og skóla nánast hvarf og mikill meirihluti upplifði betri líðan. Um leið veita niðurstöðurnar okkur mikilvægar upplýsingar um hvar við getum bætt þjónustuna enn frekar.

Við viljum að lokum þakka öllum þeim konum sem tóku sér tíma til að svara könnuninni. Framlag þeirra er ómetanlegt og hjálpar okkur að þróa þjónustuna áfram í þágu kvenna með endómetríósu.

Ertu með spurningar?

Bókaðu viðtal

Ekki hika við að hafa samband.

A male doctor holding a clipboard, ready to provide medical care and record patient information.

Klíníkin Ármúla er nútíma læknamiðstöð þar sem sérfræðingar vinna saman að bættri heilsu þinni. Markmið okkar er að vera leiðandi í þróun á öruggri hágæða læknisþjónustu.

Hafðu samband

Ármúla 9, 108 Reykjavík

Afgreiðslutími:
Mánudaga - föstudaga
kl. 07:30 - 16:00

Samfélagsmiðlar

© Höfundarréttur © Klíníkin Ármúla, öll rétttindi áskilin.