

Á Klíníkinni eru fjórar skurðstofur sem búnar eru nýjustu tækjum og búnaði sem uppfyllir ströngustu kröfur alþjóðavísindasamfélagsins. Við erum eina einkarekna heilbrigðisstofnun landsins sem hefur leyfi til reksturs legudeildar sem opnar okkur möguleika á stærri aðgerðum en ella. Á henni er ekkert til sparað til þess að fólki líði sem best á meðan það jafnar sig eftir aðgerð.
Okkar framtíðarsýn er bestu mögulegu lífsgæði fyrir hvern sjúkling. Markmið allrar heilbrigðisþjónustu er að ná bestu mögulegum lífsgæðum fyrir sérhvern sjúkling. Margir verða þannig alveg frískir eftir meðferð og aðrir fá möguleika til bættra lífsgæða þótt sjúkdómurinn hverfi ekki.
Gildin okkar
Við sem störfum við Klíníkina Ármúla höfum eftirfarandi grunngildi í heiðri í okkar starfi.
Hér erum við
Hafðu samband
Sendu okkur tölvupóst:
Sláðu á þráðinn:
Staðsetning:
Ármúla 7, 108 Reykjavík
Afgreiðslutími:
Mán-fös kl.07:30 - 16:00
Eigendur
Klíníkin Ármúla er í eigu heilbrigðisstarfsmanna sem þar starfa. Enginn arður hefur verið greiddur til hluthafa.
Stjórn
Stjórn Klíníkurinnar Ármúla skipa Gestur Jónsson stjórnarformaður, Birkir Hólm Guðnason, Hjálmar Þorsteinsson, Jóhannes Árnason og Kristján Skúli Ásgeirsson. Varamenn í stjórn eru Hrólfur Einarsson og Hjörtur Brynjólfsson.
Lög og reglur
Klíníkin Ármúla er starfrækt í samræmi við lög og reglur sem um slíka starfsemi gilda á Íslandi:
Lög um heilbrigðisþjónustu nr. 40/2007
Lög um réttindi sjúklinga nr. 74/1997
Lög um sjúklingatryggingu nr. 111/2000
Lög um lækningatæki nr. 16/2001
Reglugerð nr. 1265/2007 um hlutdeild sjúkratryggðra í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu
Reglugerð nr. 763/2000 um vátryggingu þeirra sem veita heilbrigðisþjónustu samkvæmt lögum nr. 111/2000 um sjúklingatryggingu.
Reglugerð nr. 786/2007 um eftirlit landlæknis með rekstri heilbrigðisþjónustu og faglegar lágmarkskröfur
Reglugerð nr. 934/2010 um lækningatæki
Reglugerð nr. 936/2011 um virk, ígræðanleg lækningatæki
Gátlisti eftirlits- og gæðasviðs landlæknisembættisins um öryggi í skurðaðgerðum frá 2013.
Lög um persónuvernd, sjá einnig Persónuverndarstefna fyrirtækisins.

