Þjónustan

Klíníkin

Íslenska

Þjónustan

Íslenska

Þjónustan

Íslenska

Þjónustan

Íslenska

Hryggjarklíníkin

Hryggjarklíníkin

Bak- eða taugaverkir?

Bak- eða taugaverkir?

Klíníkin framkvæmir skurðaðgerðir vegna brjóskloss og hryggþrengsla, deyfingar og brennslumeðferð (RFA) við bak- og taugaverkjum.

Klíníkin framkvæmir skurðaðgerðir vegna brjóskloss og hryggþrengsla, deyfingar og brennslumeðferð (RFA) við bak- og taugaverkjum.

Three doctors in white coats standing confidently.

Einkenni frá baki

Bak- og taugaverkir geta verið mjög lamandi og haft mikil áhrif á daglegt líf. Við hjá Klíníkinni sérhæfum okkur í greiningu og meðferð á öllum tegundum af bakverkjum og taugakvillum.


Með aðstoð reyndra sérfræðinga og nýjustu tækni vinnum við að því að greina rót vandans og bjóða upp á einstaklingsmiðaðar lausnir sem stuðla að betri heilsu og bættri lífsgæðum.


Hvort sem þú glímir við langvarandi verkjavandamál eða nýlega uppkomna verki, þá erum við hér til að aðstoða þig.

Líkan af hryggjarliðum og hryggþófum

Svona getum við hjálpað þér

Brjósklos og hryggþröng valda þrýstingi á taugar. Aðgerð getur minnkað einkenni.

Brjósklos og hryggþröng valda þrýstingi á taugar. Aðgerð getur minnkað einkenni.

Deyfi- og sterasprautur eru notaðar til að greina og meðhöndla bakverki. Hryggjarteymið, ásamt svæfingalækni, sér um deyfingarnar.

Deyfi- og sterasprautur eru notaðar til að greina og meðhöndla bakverki. Hryggjarteymið, ásamt svæfingalækni, sér um deyfingarnar.

RFA er hátíðnimeðferð sem eyðir taugum við smábogaliði með hita til að veita langtíma verkjastillingu.

RFA er hátíðnimeðferð sem eyðir taugum við smábogaliði með hita til að veita langtíma verkjastillingu.

Leiðandi sérfræðingar á sínu sviði

Teymið

Sérfræðingar í fremstu röð og framúrskarandi þjónusta.

Sérfræðingur í bæklunarlækningum

Sérfræðingur í svæfinga- og gjörgæslulækningum

Sérfræðingur í bæklunarlækningum

Sérfræðingur í bæklunarlækningum

Sérfræðingur í bæklunarlækningum

Sérfræðingur í bæklunarlækningum

Sérfræðingur í svæfinga- og gjörgæslulækningum

Sérfræðingur í bæklunarlækningum

Sérfræðingur í bæklunarlækningum

Verðskrá

Samningur hefur náðst við Sjúkratryggingar Íslands um greiðsluþátttöku þeirra í helstu bakaðgerðum. Nánar um greiðsluþátttöku sjúklinga er að finna á vef Sjúkratrygginga Íslands: sjukra.is

Þar sem mikil eftirspurn er eftir bakaðgerðum og þörfin er mikil þá er óskað eftir tilvísun til Klíníkurinnar til þess að geta forgangsraðað þjónustunni sem best.

Klíníkin býður einnig upp á aðgerðir án greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga og þá á verðskráin hér að neðan við.

Aðgerð

Verð frá

Brjósklos

1.240.000

Brjósklos, ef á samningi við SÍ

Full greiðsluþátttaka SÍ

Brottnám liðbogaþynnu

1.700.000

Brottnám liðbogaþynnu, ef á samningi við SÍ

Full greiðsluþátttaka SÍ

Legunótt

94.000

RFA meðferð 6. liðir

257.000

RFA meðferð 8. liðir

340.000

Smábogaliðsdeyfing, greiðsluþátttaka SÍ

fer eftir réttindum hvers og eins

Taugarótardeyfing, greiðsluþátttaka SÍ

fer eftir réttindum hvers og eins

Hvað þarf ég að bíða lengi?

Bið eftir hryggjaraðgerð fer eftir því hvar þú ert á biðlista og hvort aðgerðin er greidd af Sjúkratryggingum Íslands (SÍ) eða þér sjálfum. Embætti landlæknis heldur utan um biðlista allra stofnana og birtir tölur um bið eftir völdum skurðaðgerðum í mælaborðinu hér að neðan. Það sýnir fjölda þeirra sem bíða, fjölda framkvæmdra aðgerða og hve stórt hlutfall hefur beðið lengur en 90 daga – sem er viðmið embættisins um ásættanlega bið eftir aðgerð.

Heimild: Embætti landlæknis – mælaborð um bið eftir skurðaðgerðum. Tölurnar eru uppfærðar reglulega af embættinu og ná til allra stofnana á Íslandi. Opna mælaborðið í fullri stærð.

Aðgerð með greiðsluþátttöku SÍ

Klíníkin er með samning við Sjúkratryggingar Íslands um hryggjaraðgerðir. Sé skilyrðum SÍ fullnægt greiða Sjúkratryggingar aðgerðina og þú greiðir einungis komugjald samkvæmt reglugerð um greiðsluþátttöku sjúkratryggðra. Skilyrðin eru í stuttu máli þau að hryggjarskurðlæknir hafi metið að aðgerð sé rétta meðferðin og þú sért á biðlista eftir aðgerð, að þú sért sjúkratryggð/ur á Íslandi og að fjöldi aðgerða á samningi ársins sé ekki uppurinn – þeir sem hafa beðið lengst ganga fyrir.

Við förum yfir stöðu þína í fyrsta viðtali og segjum þér strax hvort og hvenær þú átt rétt á greiðsluþátttöku SÍ. Þú þarft ekki að reikna þetta út sjálf/ur.

Vilt þú ekki bíða?

Hafir þú ekki öðlast rétt til greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga getur þú valið að greiða aðgerðina sjálf/ur og fá hana gerða fyrr. Sama teymi, sama skurðstofa og sama legudeild; eini munurinn er hver greiðir. Verðið er í verðskránni hér að ofan.

Athugaðu að samkvæmt samningi Klíníkurinnar við Sjúkratryggingar Íslands er okkur ekki heimilt að gera aðgerð gegn sjálfsgreiðslu á þeim sem þegar eiga rétt á greiðsluþátttöku SÍ. Við förum yfir rétt þinn með þér áður en ákvörðun er tekin.

Hvernig er ferlið?

Hvernig er ferlið?

  1. Tilvísun og segulómun.
    Til þess að komast til baksérfræðings hjá okkur þarftu fyrst að fá tilvísun frá heimilislækni.
    Það er nauðsynlegt að með tilvísuninni fylgi niðurstaða segulómskoðunar sem hefur verið framkvæmd að hámarki 12 mánuðum áður en tilvísunin er send inn.

  2. Úrvinnsla tilvísana
    Sérfræðingur okkar metur tilvísunina þína og forgangsraðar innköllun út frá nokkrum þáttum, meðal annars með tilliti til þess hversu líklegt er að okkar úrræði muni hjálpa þér.

    Vegna mikils fjölda tilvísana getur biðtími eftir innköllun verið langur fyrir suma og í öðrum tilfellum er mælt með annarri meðferð í stað viðtals og meðferðar hjá okkur.

  3. Viðtal og mat á meðferð
    Ef tilvísun gefur tilefni til innköllunar í viðtal, færðu símtal þar sem þér er úthlutaður viðtalstími hjá sérfræðingi. Hann mun meta ástand þitt og ákveða hvaða meðferð hentar þér best.

    Athugaðu að Klíníkin hefur leyfi fyrir ákveðnum fjölda/kvóta bakaðgerða á vegum SÍ innan hvers aðgerðartímabils. Aðgerð verður því að falla innan þess kvóta sem SÍ úthlutar. Því getur liðið einhver tími frá því að greiðsluheimild fæst og þar til hægt er að framkvæma aðgerð.

Algengar spurningar

Get ég fengið að vita hvort sérfræðingur sé búinn að meta tilvísunina mína?

Hvernig veit ég að ég hef fengið send skilaboð á Heilsuveru?

Eru allar bakaðgerðir hjá Klíníkinni niðurgreiddar af Sjúkratryggingum Íslands?

Get ég greitt fyrir aðgerðina sjálf/ur og síðan sótt endurgreiðslu til Sjúkratrygginga Íslands?

Ertu með spurningar?

Bókaðu viðtal

Ekki hika við að hafa samband.

A male doctor holding a clipboard, ready to provide medical care and record patient information.

Ertu með spurningar?

Bókaðu viðtal

Ekki hika við að hafa samband.

A male doctor holding a clipboard, ready to provide medical care and record patient information.

Ertu með spurningar?

Bókaðu viðtal

Ekki hika við að hafa samband.

A male doctor holding a clipboard, ready to provide medical care and record patient information.

Klíníkin Ármúla er nútíma læknamiðstöð þar sem sérfræðingar vinna saman að bættri heilsu þinni. Markmið okkar er að vera leiðandi í þróun á öruggri hágæða læknisþjónustu.

Hafðu samband

Ármúla 7, 108 Reykjavík

Afgreiðslutími:
Mánudaga - föstudaga
kl. 07:30 - 16:00

Samfélagsmiðlar

© Klíníkin Ármúla ehf. – Öll réttindi áskilin.

Klíníkin Ármúla er nútíma læknamiðstöð þar sem sérfræðingar vinna saman að bættri heilsu þinni. Markmið okkar er að vera leiðandi í þróun á öruggri hágæða læknisþjónustu.

Hafðu samband

Ármúla 7, 108 Reykjavík

Afgreiðslutími:
Mánudaga - föstudaga
kl. 07:30 - 16:00

Samfélagsmiðlar

© Klíníkin Ármúla ehf. – Öll réttindi áskilin.

Klíníkin Ármúla er nútíma læknamiðstöð þar sem sérfræðingar vinna saman að bættri heilsu þinni. Markmið okkar er að vera leiðandi í þróun á öruggri hágæða læknisþjónustu.

Hafðu samband

Ármúla 7, 108 Reykjavík

Afgreiðslutími:
Mánudaga - föstudaga
kl. 07:30 - 16:00

Samfélagsmiðlar

© Klíníkin Ármúla ehf. – Öll réttindi áskilin.