
Þetta meðhöndlum við
Húðin er stærsta líffæri líkamans og einkenni frá henni geta verið allt frá þrálátum bólum og exemi til breytinga í fæðingarblettum sem þarf að skoða strax. Húðlæknar Klíníkurinnar taka á móti þér í viðtal, greina og meðhöndla – og ef þörf er á aðgerð er hún gerð hér á staðnum.
Við meðhöndlum bólur og rósroða, exem, psoriasis og ofnæmishúð, hármissi, naglasjúkdóma, ofsvitnun, vörtur og sýkingar í húð. Sérstök áhersla er lögð á húðkrabbamein og grunsamlega bletti: skoðun með húðsjá, sýnatöku, brottnám húðæxla og reglubundið eftirlit hjá þeim sem eru í aukinni áhættu.
Við bjóðum einnig fegrunarmeðferðir, svo sem bótox og fylliefni, í höndum sérfræðilækna.

Svona getum við hjálpað þér
Leiðandi sérfræðingar á sínu sviði
Teymið
Sérfræðingar í fremstu röð og framúrskarandi þjónusta.
Verðskrá
Húðlæknar Klíníkurinnar starfa samkvæmt samningi við Sjúkratryggingar Íslands. Sjúklingur greiðir komugjald samkvæmt gjaldskrá SÍ og Sjúkratryggingar greiða það sem eftir stendur. Ekki þarf tilvísun frá heimilislækni til að komast að hjá húðlækni.
Fegrunarmeðferðir falla ekki undir greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga og eru greiddar að fullu af sjúklingi. Verð frá: bótoxmeðferð 65.000 kr. og fylliefni 70.000 kr. Endanlegt verð fer eftir umfangi meðferðar og er staðfest í viðtali.
Nánar um greiðsluþátttöku sjúklinga er að finna á vef Sjúkratrygginga Íslands: sjukra.is
Bókaðu tíma – engin tilvísun þarf. Þú bókar tíma hjá húðlækni beint á mínum síðum, með símtali í móttöku eða með því að senda okkur bókunarbeiðni hér á síðunni. Ekki þarf tilvísun frá heimilislækni.
Viðtal og skoðun. Húðlæknir skoðar húðina, spyr um einkenni og sögu og greinir vandann. Blettir eru skoðaðir með húðsjá og tekin sýni ef þörf er á.
Meðferð og eftirfylgni. Þú færð meðferð sem hentar þínum vanda – lyf, krem, ljósameðferð eða aðgerð. Minni aðgerðir eru gerðar í staðdeyfingu á staðnum og niðurstöður sýna berast þér á mínum síðum.
Algengar spurningar
Þarf ég tilvísun til að komast til húðlæknis?
Hvenær ætti ég að láta skoða fæðingarblett?
Hvað gerist ef fjarlægja þarf blett eða húðæxli?
Get ég komið í blettaskoðun þótt ég sé ekki með einkenni?






