
Þetta meðhöndlum við
Hendurnar eru í notkun allan daginn og lítið vandamál í hendi getur skert lífsgæðin meira en fólk býst við. Algengustu vandamálin sem við tökum á móti eru úlnliðsgöng (carpal tunnel) með dofa og náladofa í fingrum, gikkfingur sem læsist í beygju, Dupuytren-sjúkdómur þar sem strengir í lófa draga fingur í kreppu, slitgigt í þumalrót og öðrum liðum handar, sinablöðrur (ganglion), sinaáverkar og brot.
Flestar aðgerðir eru gerðar í staðdeyfingu sem dagaðgerðir – losun á úlnliðsgöngum tekur til dæmis 15–20 mínútur og þú ferð heim samdægurs. Gikkfingur er oft meðhöndlaður með sterasprautu eða lítilli aðgerð og Dupuytren með aðgerð eða nálameðferð.
Fyrsta skrefið er viðtal og skoðun hjá handarskurðlækni, stundum með taugaleiðniprófi eða röntgenmynd, þar sem ákveðið er hvort aðgerð, sprauta, spelka eða handarþjálfun henti best.

Svona getum við hjálpað þér
Leiðandi sérfræðingar á sínu sviði
Teymið
Sérfræðingar í fremstu röð og framúrskarandi þjónusta.
Verðskrá
Viðtal og aðgerðir hjá handarskurðlækni Klíníkurinnar eru samkvæmt samningi Læknafélags Reykjavíkur við Sjúkratryggingar Íslands. Með tilvísun frá lækni greiðir þú komugjald samkvæmt gjaldskrá SÍ og Sjúkratryggingar greiða það sem eftir stendur. Þú getur einnig bókað viðtal beint, án tilvísunar.
Verð fyrir sjálfsgreiðendur er gefið upp í viðtali. Nánar um greiðsluþátttöku sjúklinga er að finna á vef Sjúkratrygginga Íslands: sjukra.is
Bókaðu viðtal. Þú bókar viðtal á mínum síðum eða í síma – með tilvísun frá lækni eða sjálf/ur.
Viðtal og skoðun. Handarskurðlæknir skoðar höndina; stundum þarf taugaleiðnipróf eða röntgenmynd. Saman ákveðið þið hvort aðgerð, sprauta, spelka eða þjálfun henti best.
Aðgerð og eftirfylgni. Flestar aðgerðir eru gerðar í staðdeyfingu og þú ferð heim samdægurs. Eftirlit hjá lækninum þínum og handarþjálfun hjá sjúkraþjálfara eftir þörfum.
Algengar spurningar
Þarf ég tilvísun?
Hvað er ég lengi frá vinnu?
Þarf ég að vera í gifsi eða spelku?
Er aðgerðin sársaukafull?






