
Endurhæfing sem byrjar strax
Sjúkraþjálfarar Klíníkurinnar starfa í nánu samstarfi við bæklunarlækna, skurðlækna, hjúkrunarfræðinga og annað heilbrigðisstarfsfólk Klíníkurinnar. Þess vegna getum við hafið endurhæfingu strax eftir aðgerð – oft á legudeildinni sama dag – og fylgt þér eftir þangað til þú ert komin/n á þann stað sem stefnt var að.
Aðstaðan er frábær: stór og björt meðferðarherbergi og rúmgóður æfingasalur með nýjustu tækjum. Salurinn er búinn HUR-tækjum, finnskum þjálfunartækjum sem nota loftþrýsting í stað lóða. Álagið er stillt í litlum skrefum frá nánast engu og hreyfingin er mjúk og jöfn, svo tækin henta sérstaklega vel strax eftir aðgerð, eldra fólki og þeim sem eru að byrja aftur eftir langt hlé.
Sjúkraþjálfunin er opin öllum með beiðni frá lækni – ekki aðeins þeim sem fara í aðgerð hjá okkur.

Svona getum við hjálpað þér
Leiðandi sérfræðingar á sínu sviði
Teymið
Sérfræðingar í fremstu röð og framúrskarandi þjónusta.
Verðskrá
Sjúkratryggingar Íslands taka þátt í kostnaði við sjúkraþjálfun samkvæmt beiðni frá lækni. Sjúklingar okkar sem fara í aðgerð fá beiðnina sjálfkrafa.
Frá 1. september 2026 leggst komugjald á hverja komu samkvæmt reglugerð heilbrigðisráðuneytisins: almennt 1.500 kr., aldraðir (67 ára og eldri) 1.000 kr., öryrkjar 500 kr. og börn undir 18 ára 0 kr. Gildir jafnt um einstaklingsmeðferð og hópmeðferð.
Nánar um greiðsluþátttöku sjúklinga er að finna á vef Sjúkratrygginga Íslands, sjukra.is.
Beiðni um sjúkraþjálfun. Til þess að Sjúkratryggingar taki þátt í kostnaði þarf beiðni frá lækni. Sjúklingar sem fara í aðgerð hjá Klíníkinni fá beiðnina sjálfkrafa – aðrir geta fengið hana hjá heimilislækni eða sérfræðingi.
Fyrsti tími. Sjúkraþjálfari skoðar þig, metur stöðuna og setur markmið í samráði við þig. Eftir aðgerð hefst þetta oftast strax á legudeildinni.
Meðferð og eftirfylgd. Tíðni fer eftir þörf, oftast 1–2 sinnum í viku í byrjun. Heimaæfingar eru hluti af meðferðinni og þú færð æfingaáætlun til að vinna eftir á milli tíma. Þegar við á tekur hópþjálfun í HUR-salnum við.
Algengar spurningar
Þarf ég að hafa farið í aðgerð hjá Klíníkinni til að koma í sjúkraþjálfun?
Hvað tekur endurhæfing eftir liðskipti langan tíma?
Hvað eru HUR-tæki?
Get ég bókað tíma í sjúkraþjálfun á mínum síðum?






