Þjónustan

Klíníkin

Íslenska

Þjónustan

Íslenska

Þjónustan

Íslenska

Þjónustan

Íslenska

Brjóstaklíníkin

Brjóstaklíníkin

Brjóstalækningar

Brjóstalækningar

Klíníkin framkvæmir bæði fyrirbyggjandi brjóstnám og fegrunaraðgerðir

Klíníkin framkvæmir bæði fyrirbyggjandi brjóstnám og fegrunaraðgerðir

Klíníkin framkvæmir bæði fyrirbyggjandi brjóstnám og fegrunaraðgerðir

Three doctors in white coats standing confidently.

BRCA og önnur há-áhættugen

Konur með stökkbreytingar í BRCA genum (1 eða 2) eru í verulega aukinni hættu á að fá brjóstakrabbamein á ævinni. Önnur gen geta líka aukið þessa áhættu. Með genaprófum er hægt að komast að því hvort kona er með stökkbreytingar í þessum genum og er einn valkostur, þegar slík vitneskja liggur fyrir, að undirgangast skurðaðgerð til að minnka þessa áhættu. Brjóstaskurðlæknar Klíníkurinnar veita þessum konum ráðgjöf auk þess að bjóða upp á áhættuminnkandi brjóstnámsaðgerðir, ásamt brjóstauppbyggingum, hjá þeim sem það kjósa. Undanfarin ár hafa fjölmargar íslenskar og erlendar konur nýtt sér þessa þjónustu í Brjóstaklíníkinni.


Á Íslandi eru starfandi samtök, BRAKKA samtökin (www.brca.is), sem hafa haldið utan um fræðslu og réttindi þeirra sem greinast með erfðabreytingu sem tengist aukinni áhættu á brjóstakrabbameini.

BRCA gen
Brjóst

Fyrirbyggjandi brjóstnám og enduruppbygging brjósta

Brjóstaskurðlæknar Klíníkurinnar hafa sérhæft sig í áhættuminnkandi brjóstnámsaðgerðum og enduruppbyggingu brjósta og búa að víðtækri reynslu af slíkum aðgerðum, bæði hér á landi og erlendis.


Aðstæður til að framkvæma áhættuminnkandi brjóstnámsaðgerðir og brjóstauppbyggingu í Klíníkinni Ármúla eru eins og best gerist. Lögð er áhersla á að bjóða upp á persónulega og einstaklingsmiðaða þjónustu. Þverfaglegt teymi sér svo um að annast hverja konu við eftirmeðferðina, þ.e. hjúkrun, sjúkraþjálfun o.fl.


Samningur er við Sjúkratryggingar Íslands um greiðsluþátttöku í þessum aðgerðum og er grunnkostnaður við skurðaðgerðina því sambærilegur við það að aðgerðin væri framkvæmd annars staðar innan íslenska heilbrigðiskerfisins. Upplýsingar um kostnaðarþátttöku sjúklings er að finna á vef Sjúkratrygginga Íslands, sjukra.is.

Fegrunaraðgerðir á brjóstum

Auk þess að bjóða upp á allar tegundir hefðbundinna fegrunaraðgerða á brjóstum, svo sem brjóstastækkanir og brjóstaminnkanir, býður Brjóstaklíníkin upp á sérhæfða þjónustu fyrir konur sem vilja láta fjarlægja brjóstapúða og ná sem bestum árangri varðandi útlit á eftir.


Í þessum aðgerðum nýta brjóstaskurðlæknar okkar þá reynslu sem þeir hafa öðlast við lagfæringar og uppbyggingar á brjóstum við eða eftir aðgerðir vegna brjóstakrabbameins. Oftast er mögulegt að ná góðum árangri varðandi útlit eftir að púðar eru fjarlægðir og eru fjölmargar tegundir aðgerða í boði. Mikilvægt er að þessar aðgerðir séu sniðnar að þörfum og vilja hverrar konu og leggjum við metnað í að bjóða upp á slíka þjónustu. Kostnaður við þessar aðgerðir fer eftir aðgerðartegund (sjá verðskrá).


Einnig sinna brjóstaskurðlæknar Klíníkurinnar aðgerðum vegna góðkynja stækkunar brjósta hjá karlmönnum (gynaecomastia).

Woman

Svona getum við hjálpað þér

Brjóstaklíníkin sinnir greiningum, meðferðum og skurðaðgerðum vegna allra þekktra góðkynja kvilla í brjóstum.

Brjóstaklíníkin sinnir greiningum, meðferðum og skurðaðgerðum vegna allra þekktra góðkynja kvilla í brjóstum.

Reynsla, hæfni og frábær þjónusta

Teymið

Brjóstaskurðlæknar með sérhæfingu í aðgerðum vegna brjóstakrabbameina og uppbyggingum eftir slíkar aðgerðir, fyrirbyggjandi brjóstnámi vegna BRCA og annarra hááhættugena og öllum fegrunaraðgerðum á brjóstum.

Sérfræðingur í brjóstaskurðlækningum

Sérfræðingur í brjóstaskurðlækningum

Sérfræðingur í brjóstaskurðlækningum

Sérfræðingur í brjóstaskurðlækningum

Verðskrá

Meirihluti aðgerða Brjóstaklíníkurinnar eru framkvæmdar skv. samningi við Sjúkratrygginga Íslands en nánari upplýsingar um kostnaðarþátttöku sjúklinga er að finna á vef Sjúkratrygginga Íslands: sjukra.is

Aðgerð

Verð frá

Fitusog - ástarhandföng (e. love handles) og hryggur við brjóstahaldaralínu

620.000

Brjóstalyfting - sleikipinnaör

360.000

Fjarlæging brjóstapúða, örvef (capsule), re-do brjóstalyfting og fitufylling

1.765.000

Aðgerð vegna góðkynja stækkunar á brjóstum hjá karlmönnum (gynaecomastia) - opin aðgerð og fitusog

852.000

Önnur og þriðja fitufylling í bæði brjóst - ef áður fitufylling hjá Brjóstaklíníkinni

603.000

Endurtaka (re-do) brjóstaminnkun/brjóstalyftingu (ef hefur verið gert áður)

1.250.000

Fjarlæging brjóstapúða, örvef (capsule) og re-do brjóstalyfting (ef hefur verið gert áður)

1.425.000

Fitufylling í bæði brjóst

855.000

Fjarlæging brjóstapúða, örvef (capsule), brjóstalyfting/brjóstastækkun með flipum (LICAP/L-TAP)

1.985.000

Fjarlæging brjóstapúða, örvef (capsule), brjóstalyfting og fitufylling

1.655.000

Fjarlæging brjóstapúða, örvef (capsule) og brjóstalyfting

1.315.000

Fjarlæging brjóstapúða, örvef (capsule) og fitufylling

1.315.000

Fjarlæging brjóstapúða og örvef (capsule)

855.000

Fjarlæging brjóstapúða

505.000

Brjóstaminnkun/brjóstalyfting

1.118.000

Brjóstastækkun

900.000

Hvað þarf ég að bíða lengi?

Bið eftir brjóstaminnkun fer eftir því hvar þú ert á biðlista og hvort aðgerðin er greidd af Sjúkratryggingum Íslands (SÍ) eða þér sjálfum. Embætti landlæknis heldur utan um biðlista allra stofnana og birtir tölur um bið eftir völdum skurðaðgerðum í mælaborðinu hér að neðan. Það sýnir fjölda þeirra sem bíða, fjölda framkvæmdra aðgerða og hve stórt hlutfall hefur beðið lengur en 90 daga – sem er viðmið embættisins um ásættanlega bið eftir aðgerð.

Heimild: Embætti landlæknis – mælaborð um bið eftir skurðaðgerðum. Tölurnar eru uppfærðar reglulega af embættinu og ná til allra stofnana á Íslandi. Opna mælaborðið í fullri stærð.

Aðgerð með greiðsluþátttöku SÍ

Klíníkin er með samning við Sjúkratryggingar Íslands um brjóstaminnkunaraðgerðir. Sé skilyrðum SÍ fullnægt greiða Sjúkratryggingar aðgerðina og þú greiðir einungis komugjald samkvæmt reglugerð um greiðsluþátttöku sjúkratryggðra. Skilyrðin eru í stuttu máli þau að lýtalæknir hafi metið að aðgerð sé rétta meðferðin og þú sért á biðlista eftir aðgerð, að þú sért sjúkratryggð/ur á Íslandi og að fjöldi aðgerða á samningi ársins sé ekki uppurinn – þeir sem hafa beðið lengst ganga fyrir.

Við förum yfir stöðu þína í fyrsta viðtali og segjum þér strax hvort og hvenær þú átt rétt á greiðsluþátttöku SÍ. Þú þarft ekki að reikna þetta út sjálf/ur.

Vilt þú ekki bíða?

Hafir þú ekki öðlast rétt til greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga getur þú valið að greiða aðgerðina sjálf/ur og fá hana gerða fyrr. Sama teymi, sama skurðstofa og sama legudeild; eini munurinn er hver greiðir. Verðið er í verðskránni hér að ofan.

Athugaðu að samkvæmt samningi Klíníkurinnar við Sjúkratryggingar Íslands er okkur ekki heimilt að gera aðgerð gegn sjálfsgreiðslu á þeim sem þegar eiga rétt á greiðsluþátttöku SÍ. Við förum yfir rétt þinn með þér áður en ákvörðun er tekin.

Ertu með spurningar?

Bókaðu viðtal

Ekki hika við að hafa samband.

A male doctor holding a clipboard, ready to provide medical care and record patient information.

Ertu með spurningar?

Bókaðu viðtal

Ekki hika við að hafa samband.

A male doctor holding a clipboard, ready to provide medical care and record patient information.

Ertu með spurningar?

Bókaðu viðtal

Ekki hika við að hafa samband.

A male doctor holding a clipboard, ready to provide medical care and record patient information.

Klíníkin Ármúla er nútíma læknamiðstöð þar sem sérfræðingar vinna saman að bættri heilsu þinni. Markmið okkar er að vera leiðandi í þróun á öruggri hágæða læknisþjónustu.

Hafðu samband

Ármúla 7, 108 Reykjavík

Afgreiðslutími:
Mánudaga - föstudaga
kl. 07:30 - 16:00

Samfélagsmiðlar

© Klíníkin Ármúla ehf. – Öll réttindi áskilin.

Klíníkin Ármúla er nútíma læknamiðstöð þar sem sérfræðingar vinna saman að bættri heilsu þinni. Markmið okkar er að vera leiðandi í þróun á öruggri hágæða læknisþjónustu.

Hafðu samband

Ármúla 7, 108 Reykjavík

Afgreiðslutími:
Mánudaga - föstudaga
kl. 07:30 - 16:00

Samfélagsmiðlar

© Klíníkin Ármúla ehf. – Öll réttindi áskilin.

Klíníkin Ármúla er nútíma læknamiðstöð þar sem sérfræðingar vinna saman að bættri heilsu þinni. Markmið okkar er að vera leiðandi í þróun á öruggri hágæða læknisþjónustu.

Hafðu samband

Ármúla 7, 108 Reykjavík

Afgreiðslutími:
Mánudaga - föstudaga
kl. 07:30 - 16:00

Samfélagsmiðlar

© Klíníkin Ármúla ehf. – Öll réttindi áskilin.