
Þetta meðhöndlum við
Öxlin er hreyfanlegasti liður líkamans og því viðkvæm fyrir sliti og áverkum. Algengustu vandamálin sem við tökum á móti eru verkur undir axlarhyrnu (klemma), slit og kalk í vendisinum axlarinnar, frosin öxl, liðhlaup og óstöðugleiki, áverkar á löngu sin tvíhöfðans, slit í axlarhyrnulið og liðhrörnun (slitgigt) í axlarliðnum. Í olnboga meðhöndlum við meðal annars tennisolnboga og laus brot í liðnum.
Flestar aðgerðir eru gerðar með liðspeglun í gegnum lítil op: saumur á vendisinum, losun á klemmu, viðgerð við óstöðugleika, aðgerð á löngu sin tvíhöfða, liðlosun við frosinni öxl og aðgerðir á axlarhyrnu. Við langt gengna slitgigt kemur gerviliður í öxl til greina – hefðbundinn þegar vendisinar eru heilar, viðsnúinn þegar þær eru skemmdar.
Fyrsta skrefið er alltaf viðtal og skoðun, oftast með ómskoðun eða segulómun, þar sem ákveðið er hvort skurðaðgerð sé rétta leiðin eða hvort sterasprauta, sjúkraþjálfun eða önnur meðferð dugi. Mörg axlarvandamál lagast án aðgerðar.

Svona getum við hjálpað þér
Leiðandi sérfræðingar á sínu sviði
Teymið
Sérfræðingar í fremstu röð og framúrskarandi þjónusta.
Verðskrá
Viðtal og aðgerðir hjá axlarlæknum Klíníkurinnar eru samkvæmt samningi Læknafélags Reykjavíkur við Sjúkratryggingar Íslands. Með tilvísun frá lækni greiðir þú komugjald samkvæmt gjaldskrá SÍ og Sjúkratryggingar greiða það sem eftir stendur. Þú getur einnig bókað viðtal beint, án tilvísunar.
Verð fyrir sjálfsgreiðendur er gefið upp í viðtali. Nánar um greiðsluþátttöku sjúklinga er að finna á vef Sjúkratrygginga Íslands: sjukra.is
Viðtal og greining. Þú bókar viðtal – með tilvísun frá lækni eða sjálf/ur. Axlarsérfræðingur skoðar þig og fer yfir myndgreiningu, oftast ómskoðun eða segulómun.
Ákvörðun um meðferð. Saman ákveðið þið hvort aðgerð sé rétta leiðin eða hvort sterasprauta og sjúkraþjálfun dugi. Ítarlegar leiðbeiningar fyrir aðgerðina (fasta, lyf, svæfing) færðu á mínum síðum og mætingartíma nokkrum dögum fyrir aðgerð.
Aðgerð og endurhæfing. Speglunaraðgerðir eru dagaðgerðir; eftir gervilið gistir þú eina nótt á legudeild. Fatli í 3–4 vikur eftir sinasaum, enginn eftir liðlosun. Sjúkraþjálfun og eftirlit hjá lækninum þínum fylgja í kjölfarið.
Algengar spurningar
Þarf ég tilvísun?
Hvað er ég lengi frá vinnu?
Þarf ég að vera í fatla?
Lagast frosin öxl af sjálfu sér?
Fræðsla um axlir og olnboga
Verkur undir axlarhyrnu (klemma)
Slit í vendisinum axlarinnar
Kalk í vendisinum axlarinnar
Sinamein í vendisinum
Frosin öxl
Fremra liðhlaup í öxl
Áverkar á og liðhlaup í axlarhyrnulið
Slit í axlarhyrnulið
Áverkar á löngu sin tvíhöfðans
Festumein löngu sinar tvíhöfða (SLAP)
Vanstýring á herðablaði
Liðhrörnun (slitgigt) í axlarliðnum
Tennisolnbogi
Hröngl í olnbogaliðnum








