
Sérhæfð meðferð við kvið- og meltingarsjúkdómum
Meltingarklíníkin sérhæfir sig í greiningu og meðferð á sjúkdómum tengdum meltingarfærum, ristli og endaþarmi.
Boðið er upp á aðgerðir eins og ristilspeglun, kviðslitsaðgerðir, meðferðir við gyllinæð, sárum í endaþarmsopi og fleiri sjúkdómum tengdum kvið og meltingarvegi.
Klíníkin leggur áherslu á nútímalegar og árangursríkar meðferðir, veittar af sérfræðingum með mikla reynslu.
Áherslur okkar. Ráðgjöf og greining vegna meltingarsjúkdóma: bakflæði, kyngingarónot, kviðverkir og breytilegar hægðavenjur. Skimun fyrir ristilkrabbameini, vélindasjúkdómar, magavandamál, ristilsjúkdómar, bólgusjúkdómar í þörmum, iðraólga (IBS), blæðing frá endaþarmi og endaþarmsvandamál (proktólógía).

Svona getum við hjálpað þér
Sérhæfðar deildir meltingarlækninga
Reynsla, hæfni og góð aðstaða
Teymið
Sérfræðingar í fremstu röð á sviði lækninga og framúrskarandi þjónusta.
Verðskrá
Nánast öll þjónusta Meltingar og kviðar fellur undir rammasamning við Sjúkratryggingar Íslands og þú greiðir samkvæmt gjaldskrá SÍ og réttindum þínum. Kviðslitsaðgerðir falla undir samning við SÍ frá ágúst 2025. Upplýsingar um greiðsluþátttöku er að finna á vef Sjúkratrygginga Íslands, sjukra.is, og nánari upplýsingar um kostnað færðu í viðtali hjá lækni.
Hvað þarf ég að bíða lengi?
Bið eftir kviðsjáraðgerð fer eftir því hvar þú ert á biðlista og hvort aðgerðin er greidd af Sjúkratryggingum Íslands (SÍ) eða þér sjálfum. Embætti landlæknis heldur utan um biðlista allra stofnana og birtir tölur um bið eftir völdum skurðaðgerðum í mælaborðinu hér að neðan. Það sýnir fjölda þeirra sem bíða, fjölda framkvæmdra aðgerða og hve stórt hlutfall hefur beðið lengur en 90 daga – sem er viðmið embættisins um ásættanlega bið eftir aðgerð.
Heimild: Embætti landlæknis – mælaborð um bið eftir skurðaðgerðum. Tölurnar eru uppfærðar reglulega af embættinu og ná til allra stofnana á Íslandi. Opna mælaborðið í fullri stærð.
Aðgerð með greiðsluþátttöku SÍ
Klíníkin er með samning við Sjúkratryggingar Íslands um kviðsjáraðgerðir, svo sem kviðslitsaðgerðir og gallblöðrutöku. Sé skilyrðum SÍ fullnægt greiða Sjúkratryggingar aðgerðina og þú greiðir einungis komugjald samkvæmt reglugerð um greiðsluþátttöku sjúkratryggðra. Skilyrðin eru í stuttu máli þau að skurðlæknir hafi metið að aðgerð sé rétta meðferðin og þú sért á biðlista eftir aðgerð, að þú sért sjúkratryggð/ur á Íslandi og að fjöldi aðgerða á samningi ársins sé ekki uppurinn – þeir sem hafa beðið lengst ganga fyrir.
Við förum yfir stöðu þína í fyrsta viðtali og segjum þér strax hvort og hvenær þú átt rétt á greiðsluþátttöku SÍ. Þú þarft ekki að reikna þetta út sjálf/ur.
Vilt þú ekki bíða?
Hafir þú ekki öðlast rétt til greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga getur þú valið að greiða aðgerðina sjálf/ur og fá hana gerða fyrr. Sama teymi, sama skurðstofa og sama legudeild; eini munurinn er hver greiðir. Verðið er í verðskránni hér að ofan.
Athugaðu að samkvæmt samningi Klíníkurinnar við Sjúkratryggingar Íslands er okkur ekki heimilt að gera aðgerð gegn sjálfsgreiðslu á þeim sem þegar eiga rétt á greiðsluþátttöku SÍ. Við förum yfir rétt þinn með þér áður en ákvörðun er tekin.












