
Þetta meðhöndlum við
Fóturinn ber allan líkamsþungann og lítil breyting á stöðu táa eða ökkla getur valdið miklum óþægindum. Algengustu vandamálin sem við tökum á móti eru hallux valgus (skökk stóratá), hamartær, taugaklemma milli táa (Morton), hælspori og bólga í ilsin, sinabólga og slit í hásin og slitgigt í ökkla og tám.
Aðgerðir eru gerðar með sem minnstu inngripi; margar tá- og framfótaraðgerðir eru dagaðgerðir í staðdeyfingu eða slævingu. Við slitgigt kemur staurliðsaðgerð eða liðskipti í ökkla til greina.
Fyrsta skrefið er viðtal og skoðun hjá fótarskurðlækni með röntgenmynd þar sem farið er yfir hvort innlegg, skór, sjúkraþjálfun eða aðgerð henti best.

Svona getum við hjálpað þér
Leiðandi sérfræðingar á sínu sviði
Teymið
Sérfræðingar í fremstu röð og framúrskarandi þjónusta.
Verðskrá
Viðtal og aðgerðir hjá fótarskurðlæknum Klíníkurinnar eru samkvæmt samningi Læknafélags Reykjavíkur við Sjúkratryggingar Íslands. Með tilvísun frá lækni greiðir þú komugjald samkvæmt gjaldskrá SÍ og Sjúkratryggingar greiða það sem eftir stendur. Þú getur einnig bókað viðtal beint, án tilvísunar.
Verð fyrir sjálfsgreiðendur er gefið upp í viðtali. Nánar um greiðsluþátttöku sjúklinga er að finna á vef Sjúkratrygginga Íslands: sjukra.is
Tilvísun og viðtal. Þú bókar viðtal – með tilvísun frá lækni eða sjálf/ur. Fótarskurðlæknir skoðar fótinn og fer yfir röntgenmynd.
Ákvörðun um meðferð. Saman ákveðið þið hvort aðgerð sé rétta leiðin eða hvort innlegg, skór og sjúkraþjálfun dugi. Leiðbeiningar fyrir aðgerðina færðu á mínum síðum.
Aðgerð og eftirfylgni. Flestar aðgerðir eru dagaðgerðir. Sérstakir skór eða gips eftir þörfum, eftirlit hjá lækninum þínum og sjúkraþjálfun í kjölfarið.
Algengar spurningar
Þarf ég tilvísun?
Hvað má ég ganga mikið eftir aðgerð?
Hvenær má ég keyra?
Hversu lengi er bólga eftir táaðgerð?







