Fréttir og fræðsla
500 liðskiptaaðgerðir framkvæmdar
Þann 16. október 2023 var stór áfangi í sögu Klíníkurinnar
Þann 16. október 2023 var stór áfangi í sögu Klíníkurinnar er liðskiptaaðgerð númer 500 innan ársins 2023 var framkvæmd. Fyrsta liðskiptaaðgerðin hjá Klíníkinni var framkvæmd þann 7. febrúar 2017, alls hafa 1560 liðskiptaaðgerðir verið framkvæmdar á þessum tímamótum. Framundan eru afkastamestu vikur Klíníkurinnar innan liðskipta, en áformaðar eru um 700 aðgerðir á árinu.
Við fögnuðum þessum áfanga í vikulok, á myndinni eru þeir starfsmenn sem hafa borið hitann og þungan af sjálfum aðgerðunum, miklu fleiri koma þó að umönnun þeirra er á slíkri aðgerð þurfa að halda.

Nýlegar fréttir og fræðsla

Komugjöld sjúkraþjálfunar
Ný komugjöld á sjúkraþjálfun taka gildi 1. september skv. reglugerð

Bætt heilsa - örnámskeið
Langar þig að efla heilsuna með einföldum og raunhæfum breytingum sem skipta máli?

Hagnýt matreiðslunámskeið
Hollur matur á annasömum dögum

Þjónustukönnun - endómetríósa
Góður árangur af endómetríósuaðgerðum — niðurstöður þjónustukönnunar



