Services

Klíníkin

English

Services

English

Services

English

Services

English

News and patient information

Fréttatilkynning

Efnaskiptaaðgerðir á vegum ríkisins hefjast hjá Klíníkinni Ármúla

Efnaskiptaaðgerðir á vegum ríkisins hefjast hjá Klíníkinni Ármúla

Sjúklingar sem þurfa á efnaskiptaaðgerðum að halda munu nú geta fengið þjónustuna á Íslandi með greiðsluþátttöku ríkisins, að uppfylltum skilyrðum Sjúkratrygginga Íslands. Sjúkratryggingar Íslands og Klíníkin Ármúla hafa náð samkomulagi um framkvæmd aðgerðanna á grundvelli þjónustusamnings frá árinu 2025. Frá árinu 2022 hefur þjónustan á vegum ríkisins farið fram í Svíþjóð. Samkomulagið markar því mikilvægt framfaraskref fyrir sjúklinga og jákvæða þróun fyrir íslenskt heilbrigðiskerfi og samfélagið í heild.

Samkomulagið er niðurstaða viðræðna aðila undanfarna mánuði. Það heimilar framkvæmd allt að 40 efnaskiptaaðgerða hjá Klíníkinni á tímabilinu 1. nóvember til 31. desember 2026.

Klíníkin hefur í um áratug sinnt efnaskiptaaðgerðum og byggt upp sérhæfða þekkingu og aðstöðu á þessu sviði. Að meðferðinni kemur þverfaglegt teymi heilbrigðisstarfsfólks og lögð er áhersla á skipulagða eftirfylgd. Sú reynsla og þeir innviðir sem þegar eru til staðar skapa góðan grundvöll fyrir framkvæmd aðgerðanna samkvæmt samkomulaginu.

„Við fögnum því að þessi mikilvæga þjónusta verði nú aðgengileg fleiri sjúklingum hér á landi. Efnaskiptaaðgerðir eru gott dæmi um heilbrigðisþjónustu sem við höfum bæði þekkingu og aðstöðu til að veita á Íslandi. Þegar hægt er að tryggja sjúklingum örugga og góða þjónustu innanlands teljum við eðlilegt að sú leið sé nýtt,“ segir Kristján Jón Jónatansson, framkvæmdastjóri Klíníkurinnar Ármúla.

Ávinningur fyrir sjúklinga og íslenskt samfélag

Með innlendri framkvæmd dregur úr þörf sjúklinga fyrir ferðalög til útlanda vegna aðgerðanna. Það getur minnkað álag á sjúklinga og aðstandendur þeirra og auðveldað samfellda þjónustu, allt frá undirbúningi til eftirfylgdar.

Ávinningurinn nær einnig til samfélagsins. Þegar heilbrigðisþjónusta er veitt innanlands stuðla opinberir fjármunir að atvinnusköpun og verðmætasköpun hér á landi, auk þess sem starfsemin skilar skatttekjum til samfélagsins. Við mat á hagkvæmni slíkrar þjónustu er því mikilvægt að horfa til heildarmyndarinnar, þar á meðal ferðakostnaðar sem fylgir meðferð erlendis og skattspors innlendrar starfsemi, en ekki eingöngu verðs einstakra aðgerða.

Samkomulagið skapar þannig tækifæri til að bæta þjónustu við sjúklinga, nýta íslenska heilbrigðisinnviði betur og halda stærri hluta þeirrar verðmætasköpunar sem fylgir þjónustunni á Íslandi.

Kristján Jón Jónatansson

Framkvæmdastjóri

Klíníkin Ármúla

Do you have any questions?

Book an appointment

Do not hesitate to get in touch.

A male doctor holding a clipboard, ready to provide medical care and record patient information.

Klíníkin is a modern medical centre where specialists work together to improve your health. Our goal is to be a leader in the development of safe, high-quality medical services.

Contact us

app.medalia.is/klinikin/care

Ármúla 7–9, 108 Reykjavík

Opening hours:
Monday - Friday
07:30 - 16:00

The phone line closes at 15:00 on Fridays

Social Media

© Klíníkin Ármúla ehf. – All rights reserved.

07:00 - 17:30

Social Media

© Klíníkin Ármúla ehf. – All rights reserved.