
Þetta meðhöndlum við
Vandamál frá endaþarmi eru algeng en fáir tala um þau. Flest eru meinlaus og auðleyst, en einkenni eins og blæðing, verkur, kláði, hnútur eða breytingar á hægðum þarf alltaf að skoða – bæði til að létta óþægindin og til að útiloka alvarlegri sjúkdóma.
Algengustu vandamálin sem við tökum á móti eru gyllinæð (innri og ytri) og húðsepar við endaþarmsop, sprungur í endaþarmsopi, fistlar og kýli, tvíburabróðir (pilonidal sinus), slímhúðarsig og endaþarmssig, hægðaleki og tæmingarhindrun, kláði og húðsjúkdómar í endaþarmsopi, kynfæravörtur og forstigsbreytingar, auk krabbameins í endaþarmi og endaþarmsopi.
Greiningin byggir á viðtali, skoðun og endaþarmsspeglun á stofunni; þegar þörf er á er gerð ómskoðun á endaþarmi og hringvöðva eða ristilspeglun. Ristil- og endaþarmsskurðlæknir Klíníkurinnar hefur áratuga reynslu af þessum sjúkdómum, bæði hér heima og í Svíþjóð, og er klínískur dósent við Háskóla Íslands.

Svona getum við hjálpað þér
Leiðandi sérfræðingar á sínu sviði
Teymið
Sérfræðingar í fremstu röð og framúrskarandi þjónusta.
Verðskrá
Móttaka, rannsóknir og aðgerðir hjá ristil- og endaþarmsskurðlækni Klíníkurinnar eru samkvæmt samningi Læknafélags Reykjavíkur við Sjúkratryggingar Íslands. Með tilvísun frá lækni greiðir þú komugjald samkvæmt gjaldskrá SÍ og réttindum þínum og Sjúkratryggingar greiða það sem eftir stendur. Þú getur einnig bókað viðtal beint, án tilvísunar.
Stærri aðgerðir á skurðstofu Klíníkurinnar eru ýmist innan samnings við SÍ eða greiddar af sjúklingi sjálfum. Við förum yfir rétt þinn og kostnað með þér í viðtalinu áður en ákvörðun er tekin, svo að engar óvæntar greiðslur komi upp.
Tilvísun eða bókun. Tilvísun frá heimilislækni tryggir greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga; þú getur einnig bókað viðtal beint á mínum síðum eða í síma 519 7000.
Viðtal, skoðun og speglun. Í fyrstu heimsókn er endaþarmurinn skoðaður og oftast gerð stutt endaþarmsspeglun á stofunni. Ómskoðun eða ristilspeglun er bókuð ef þörf er á.
Meðferð og eftirfylgni. Margar aðgerðir eru gerðar strax á stofu í staðdeyfingu, aðrar á skurðstofu Klíníkurinnar í slævingu eða svæfingu. Þú færð skriflegar leiðbeiningar um undirbúning og eftirmeðferð á mínum síðum.
Algengar spurningar
Er blóð í hægðum alltaf gyllinæð?
Er aðgerðin sársaukafull?
Þarf ég að vera svæfð/ur?
Hvað er tvíburabróðir?









