

Speglanir á Klíníkinni
Ristilspeglun: sveigjanleg myndavél skoðar allan ristilinn. Hún er notuð til að greina orsök blæðinga, breytinga á hægðum og kviðverkja – og til að finna og fjarlægja sepa áður en þeir verða að krabbameini. Speglunin tekur 20–40 mínútur og er gerð í slævingu; þú ert hjá okkur í um tvær klukkustundir.
Magaspeglun: skoðun á vélinda, maga og skeifugörn vegna bakflæðis, kyngingarerfiðleika, verkja eða blóðleysis. Tekur 5–15 mínútur og slæving er valfrjáls.
Ristilskimun: ristilkrabbamein er meðal algengustu krabbameina á Íslandi en næstum alltaf læknanlegt sé það fundið snemma. Speglun er nákvæmasta skimunin því separ eru fjarlægðir á staðnum. Við mælum með skimun frá 45 ára aldri – fyrr ef ristilkrabbamein er í nánustu fjölskyldu. Þú getur bókað skimun án tilvísunar.
Svona bókar þú. Viðtal hjá lækni: æskilegt er að tilvísun frá heilsugæslulækni fylgi þar sem vandamálinu og óskum um úrlausn er lýst. Speglun vegna einkenna eða áhættuþátta: sömuleiðis æskilegt að tilvísun liggi fyrir. Forvarnarristilspeglun: þeir sem eru 45–75 ára geta bókað ristilspeglun beint án tilvísunar. Viðtöl og speglanir má bóka á mínum síðum eða í síma 519 7000. Allar beiðnir eru yfirfarnar af heilbrigðisstarfsmanni áður en tími er staðfestur.
Ristilspeglun – þetta er ekkert mál. Í fræðslumyndbandinu hér til hliðar (9 mínútur) er farið í gegnum allt ferlið við ristilspeglun, frá undirbúningi til loka. Handrit: Ásgeir Theódórs, sérfræðingur í meltingarsjúkdómum.
Svona getum við hjálpað þér
Reynsla, hæfni og góð aðstaða
Teymið
Sérfræðingar í fremstu röð á sviði lækninga og framúrskarandi þjónusta.
Sérfræðingur í almennum skurðlækningum
Sérfræðingur í almennum skurðlækningum
Sérfræðingur í almennum skurðlækningum
Sérfræðingur í almennum skurðlækningum
Sérfræðingur í meltingarlækningum
Sérfræðingur í almennum skurðlækningum
Verðskrá
Speglanir eru gerðar samkvæmt samningi Læknafélags Reykjavíkur við Sjúkratryggingar Íslands. Þú greiðir komugjald samkvæmt gjaldskrá SÍ og réttindum þínum – upplýsingar um greiðsluþátttöku sjúklinga er að finna á vef Sjúkratrygginga Íslands: sjukra.is. Ristilskimun án einkenna er í boði fyrir sjálfsgreiðendur; verð er gefið upp við bókun.












