Nyheter og pasientinformasjon
Gæðaskýrsla Klíníkurinnar fyrir árið 2025
Fáar djúpar sýkingar eftir liðskipti og 97,6 % ánægja. Gæðaskýrsla ársins 2025 er komin út.
Klíníkin Ármúla hefur gefið út gæðaskýrslu fyrir starfsárið 2025. Í henni eru birtar niðurstöður allra gæðavísa sem samningur Klíníkurinnar við Sjúkratryggingar Íslands kveður á um. Þar er einnig sagt frá árangri aðgerða að mati sjúklinganna sjálfra.
Árið 2025 voru gerðar 694 liðskiptaaðgerðir á mjöðm og hné, 91 aðgerð á hrygg, 198 aðgerðir vegna endómetríósu og 220 efnaskiptaaðgerðir.
Liðskipti: nálægt markmiðinu um enga sýkingu
Engin djúp sýking greindist innan 90 daga frá liðskiptaaðgerð. Tveir sjúklingar fengu þó djúpa sýkingu í gervilið síðar, meira en 90 dögum eftir aðgerð (0,3 %). Djúp sýking er þungbær fylgikvilli fyrir þá sem í henni lenda. Markmið okkar er alltaf að enginn fái sýkingu. Þótt árangurinn sé nálægt því höldum við áfram að leita leiða til að gera enn betur.
Endurinnlögn innan 30 daga var 1,6 % og miðgildi biðtíma frá ákvörðun um aðgerð var 28 dagar.
Á Íslandi er engin gerviliðaskrá. Klíníkin ber því sjúklingahóp sinn saman við sænsku gerviliðaskrána, sem er ein sú elsta og virtasta í heiminum, og sýkingar við nýja íslenska landsrannsókn.
Endómetríósa: helmingi minni verkir
Sjúklingum sem gengust undir aðgerð vegna endómetríósu árið 2025 var boðið að svara eftirfylgnikönnun. Að miðgildi 14 mánuðum eftir aðgerð hafði versti verkur lækkað úr 9,1 í 4,4 á kvarðanum 0–10. Fjarvistardögum frá vinnu eða námi fækkaði úr 7,8 í 0,9 á hverjum fjórum vikum. Alls lýstu 82 % betri einkennum og 94 % gáfu umönnuninni einkunnina 4 eða 5 af 5.
Efnaskiptaaðgerðir innan viðmiða
Fylgikvillar sem leiddu til enduraðgerðar eftir efnaskiptaaðgerð voru 1,4 %. Það er innan þeirra marka sem Sjúkratryggingar Íslands setja sem viðmið fyrir þennan aðgerðaflokk.
Mikil ánægja með þjónustuna
Í þjónustukönnun voru 97,6 % svarenda ánægð eða mjög ánægð með þjónustuna. Viðmót starfsfólks fékk hæstu einkunn allra þátta.
Gagnsæi er forsenda umbóta
Skýrslan segir líka frá því sem betur má fara. Liðhlaup eftir mjaðmaliðskipti voru 2,4 % og eru forgangsatriði í umbótaáætlun ársins 2026. Með nýju sjúkraskrárkerfi, Medalia, sem tekið verður í notkun í lok árs 2026, verður skráning á árangri að mati sjúklinga (PROM) fyrir og eftir aðgerð hluti af hefðbundnu verklagi.
„Við mælum árangur allra aðgerða og birtum hann opinberlega, líka það sem betur má fara. Þannig byggjum við upp traust og bætum þjónustuna ár frá ári,“ segir Hjálmar Þorsteinsson, forstöðumaður lækninga.
Gæðaskýrsluna í heild má nálgast hér: Gæðaskýrsla 2025 (PDF)

Siste nyheter og artikler

Gæðaskýrsla Klíníkurinnar fyrir árið 2025
Fáar djúpar sýkingar eftir liðskipti og 97,6 % ánægja. Gæðaskýrsla ársins 2025 er komin út.

Egenandel for fysioterapi
Nye egenandeler for fysioterapi trer i kraft 1. september i henhold til forskrift

Håndkirurg til Klíníkin
Drífa Frostadóttir blir en del av legestaben ved Klíníkin

Bedre helse - mikrokurs
Ønsker du å forbedre helsen din med enkle og realistiske endringer som betyr noe?



