Hann Daníel Gunnarsson kom til okkar á Klíníkina í magaermi fyrir rúmu ári síðan og hefur breytt lífi sínu töluvert í kjölfarið. Hann gerði sér meðal annars lítið fyrir og hreppti annað sæti á bikarmóti í fitness karla nú á dögunum.
Rætt var við Daníel í þættinum Mannlegi þátturinn sem er á dagskrá RÚV og mælum við eindregið með því fyrir áhugasama að hlusta á Daníel deila reynslu sinni.
Í viðtalinu fer hann í gegnum sögu sína, hvernig honum gekk að byrja að hreyfa sig að nýju eftir aðgerð og mikilvægi þess að vinna jafnt í andlegu- og líkamlegu heilsunni.
https://www.ruv.is/utvarp/dagskra/ras1/2022-12-01/5189980
Hér er einnig hægt að lesa ágrip úr viðtalinu:
Það er fátt sem gleður okkur á Klíníkinni jafn mikið og sjá skjólstæðinga okkar ná betri heilsu!
