LEIÐBEININGAR UM UNDIRBÚNING FYRIR RISTILSPEGLUN
SVONA ER PICOPREP TEKIÐ
-
Taktu glas með 150 ml af köldu vatni.
-
Helltu duftinu úr einu bréfi í vatnið.*
-
Hrærðu í blöndunni í 2 – 3 mínútur. Þegar blandan hættir að Freyða er hún tilbúin. Blandan mun vera beinhvít.
-
Drekktu nú blönduna, helst innan 15 mínútna.
-
Drekkið a.m.k. 2 ltr. af tærum vökva eftir hvort bréf.
1–6 klst. eftir að þú hefur tekið lyfið fer það að virka, því er nauðsynlegt að vera nálægt salerni.
Áður en blandan er drukkin, er gott að fyrirbyggja óþægindi við endaþarm og nota vatnsfráhrindandi krem, s.s. Vaselin, A+D krem eða júgursmyrsli.
MIKILVÆGT ER AÐ DREKKA MJÖG VEL AF VÖKVA ALLAN UNDIRBÚNINGSTÍMANN OG HREYFA SIG VEL
Mikilvægt er að drekka ekki eingöngu vatn og gæta þess að borða einnig sykur og sölt. Athugið að ekki má neyta mjólkurvara. Einnig skal forðast litsterka safa eins og rauðrófusafa og einnig litsterka orkudrykki
Dæmi um tært fljótandi fæði:
-
Síaðar, tærar ávaxta-og grænmetissúpur. Tilvalið að nota súputeninga og tærar pakkasúpur.
-
Síuð kjötsúpa
-
Ávaxtasafar án aldinkjöts.
-
Gosdrykkir (ekki sykurlausa því líkaminn þarf á orku að halda).
-
Tæra orkudrykki.
-
Te og svart kaffi, gjarnan með sykri eða hunangi (án mjólkur)
-
Frostpinnar án súkkulaðis.
-
Pilsner, malt
-
Það má vera með tyggjó og einnig sjúga brjóstsykur
SÉRFRÆÐINGAR


TRYGGVI B. STEFÁNSSON
Skurðlæknir ristils og endaþarms
ÁSGEIR THEÓDÓRS
Meltingarlæknir