top of page

LEIÐBEININGAR UM UNDIRBÚNING FYRIR KVIÐSLITSAÐGERÐ

Mataræði:   Áríðandi er að halda hægðum mjúkum. Það fæst best með því að borða trefjaríkan mat (hveitiklíð, grænmeti og ávextir) og drekka mikið af vatni. Ef þú hefur harðar hægðir er gott að taka Magnesia medic.

 

Hreinlæti:   Bað eða sturta tvisvar á dag og eftir hægðir.

 

Hreyfing:   Fyrstu 3 dagana áttu að halda kyrru fyrir og ekki reyna á þig, til þess að forðast blæðingu í skurðsvæðið. Á 4ða degi máttu fara að hreyfa þig varlega. Það verða verkir í skurðsvæðinu fyrstu vikuna eftir aðgerð, verst fyrstu 2 dagana. Eftir 2 vikur áttu að vera verkjalaus og eftir 4 vikur eymslalaus. Eftir 6 vikur hefur viðgerðin náð fullum styrk.

 

Verkir:   Ekki nota lyf sem innihalda codein þar sem það getur  valdið hægðatregðu. Paracetamol, Ibufen og Tramadol eru verkjalyf sem getur verið þörf fyrir eftir aðgerðina. Þú færð lyfseðil fyrir lyfjum sem þú þarft áður en þú ferð heim.

 

Fylgikvillar:   Hafðu samband ef þú færð aukna verki, blæðingu eða hita eftir aðgerðina.

SÉRFRÆÐINGUR

Tryggvi%201_edited.jpg

TRYGGVI B. STEFÁNSSON

Skurðlæknir ristils og endaþarms

bottom of page